ÍBV fær liðsstyrk fyrir lokasprettinn
Jon Arnar Ibvsp
Jón Arnar Barðdal. Ljósmynd/ibvsport.is

Knattspyrnumaðurinn Jón Arnar Barðdal hefur skrifað undir samning við ÍBV til loka tímabilsins en hann kemur til með að hjálpa liðinu í baráttunni í Lengjudeildinni. Greint er frá þessu í tilkynningu á vefsíðu ÍBV.

Jón Arnar er 29 ára gamall sóknarmaður sem lék með Stjörnunni upp alla yngri flokkana en á hans meistaraflokksferli hefur hann leikið 122 deildarleiki á Íslandi, rúmlega þriðjung þeirra í efstu deild með HK og Stjörnunni þar sem hann hefur skorað fimm mörk.

Í næst efstu deild hefur hann leikið 36 leiki með Fjarðabyggð, ÍR og Þrótti og skorað 7 mörk. Árið 2014 lék Jón 4 leiki fyrir Stjörnuna sem urðu Íslandsmeistarar og fóru taplausir í gegnum deildina.

Nýjustu fréttir

Minningar um gos – söngvar og sögur í Eldheimum
„Fínasti vertíðarfiskur”
Kallað eftir hugmyndum fyrir Goslokahátíð 2026
Ein ferð í Landeyjahöfn
Heilsurækt við Íþróttamiðstöðina boðin út á ný eftir kærumál
Góður mánudagur sem varð enn betri!
Fimm skip til loðnuleitar
Löndun Breka VE í Grundarfirði – flókið verkefni og fumlaus vinnubrögð
Eyjafréttir
Friðhelgisyfirlýsing

Þessi vefsíða notar fótspor til að við getum veitt þér bestu notendaupplifun. Upplýsingar um fótspor eru geymdar í vafranum þínum og framkvæma aðgerðir eins og að þekkja þig þegar þú kemur aftur á vefsíðu okkar og hjálpa teymi okkar að skilja hvaða hluta vefsíðunnar þér finnst áhugaverðast og gagnlegast.