ÍBV í undanúrslit - Arnar varar við bjartsýni á framhaldið
�??Við tók­um leik­inn yfir þegar á leið, svipað og gerðist í fyrri leikn­um í Eyj­um á fimmtu­dags­kvöldið,” sagði Arn­ar Pét­urs­son, þjálf­ari ÍBV, við mbl.is eftir sigurinn gegn Gróttu sem tryggði Eyjamönnum farmiða í undanúrslitin. Lokatölur voru 23:29 en í hálfleik var staðan 11:15 fyrir ÍBV.
Theodór Sigurbjörnsson skoraði 8, Einar Sverrisson 5 og Andri Heimir Friðriksson, Kári Kristján Kristjánsson, Dagur Arnarsson og Agnar Smári Jónsson skoruðu 3.
�??Um leið og við losuðum okk­ur við tuðið og aðra erfiðleika á upp­haf­smín­út­un­um þá varð þetta okk­ar leik­ur,” sagði Arn­ar sem var skilj­an­lega ánægður með lið sitt sem lagði Gróttu í tvígang ör­ugg­lega en fyr­ir­fram var ótti í Arn­ari að mæta Gróttu-liðinu.
Arn­ar sagði að varn­ar­leik­ur ÍBV sé góður um þess­ar mund­ir en hann var­ar við bjart­sýni. �??�?tli að það hafi ekki verið svona brag­ur á okk­ur í fe­brú­ar í fyrra. En verður geta skip­ast fljótt í lofti auk þess sem við verðum að vera klár­ir í að mæta enn sterk­ari and­stæðingi í næstu um­ferð. En á meðan við eru að mestu meiðslalaus­ir þá erum við öfl­ug­ir,” sagði Arn­ar Pét­urs­son, þjálf­ari ÍBV við mbl.is. http://www.mbl.is/sport/handbolti/2016/04/17/tokum_yfir_leikinn/

Nýjustu fréttir

Svava Tara hjá Sölku fer yfir sumartískuna 2026
Eyjan okkar
Brjóstaskimun í Eyjum
Tvö fyrirtæki frá FÍV komin í úrslit fyrirtækjasmiðju
Ómálefnaleg veiðiráðgjöf á hvölum
Við þurfum að hætta þessum bútasaumi
Úr fótbolta yfir í hlaup
Aníta Sif er Eyjamaður mánaðarins
Eyjafréttir
Friðhelgisyfirlýsing

Þessi vefsíða notar fótspor til að við getum veitt þér bestu notendaupplifun. Upplýsingar um fótspor eru geymdar í vafranum þínum og framkvæma aðgerðir eins og að þekkja þig þegar þú kemur aftur á vefsíðu okkar og hjálpa teymi okkar að skilja hvaða hluta vefsíðunnar þér finnst áhugaverðast og gagnlegast.