ÍBV vann Hauka | Staðan er 2:1 í einvíginu
Eyja­menn náðu með frá­bærri bar­áttu að halda sér á lífi í undanúr­slita­ein­víg­inu gegn Hauk­um í Olís-deild­inni í hand­knatt­leik eft­ir sig­ur, 35:33 ,í fram­lengd­um leik í þriðju viður­eign liðanna að Ásvöll­um í kvöld. Staðan í rimmu liðanna er 2:1 fyr­ir Hauk­anna en fjórði leik­ur­inn fer fram í Eyj­um á sunnudaginn.
Liðin buðu upp á frá­bær­an leik í flottri um­gjörð að Ásvöll­um þar sem stemn­ing­in var frá­bær. Eft­ir að Eyja­menn höfðu átt frá­bær­an leikkafla seinni hlut­ann í fyrri hálfleik voru þeir tveim­ur mörk­um yfir í hálfleik, 14:12.
Hauk­ar voru fljót­ir að jafna met­in í seinni hálfleik og eft­ir það skipt­ust liðin á að hafa for­yst­una. Spenn­an var gríðarleg á loka­mín­út­un­um en Adam Hauk­ur tryggði Hauk­un­um fram­leng­ingu. Í henni reynd­ust Eyja­menn sterk­ari þar sem Ein­ar Sverris­son skoraði tvö síðustu mörk ÍBV. Nú er bara að fjölmenna á völlinn á sunnudaginn og hvetja okkar menn til sigurs!
Mbl.is greindi frá.

Nýjustu fréttir

Bæjarstjórn gagnrýnir boðaðan niðurskurð til Herjólfs
ÍBV vann öruggan sigur á Stjörnunni – Sandra fór á kostum
Heimir Hallgrímsson heldur varnarnámskeið í Eyjum í desember
Vestmannaeyjabær leggur sex milljónir í hlutafjáraukningu í Eyjagöngum
Skálað og skrafað í Miðstöðinni – myndir
Eyjakonur vilja halda í við topplið Hauka
Glæsileg söngveisla þriggja kóra í Eyjum
Þoka hér en ekki þar
Eyjafréttir
Friðhelgisyfirlýsing

Þessi vefsíða notar fótspor til að við getum veitt þér bestu notendaupplifun. Upplýsingar um fótspor eru geymdar í vafranum þínum og framkvæma aðgerðir eins og að þekkja þig þegar þú kemur aftur á vefsíðu okkar og hjálpa teymi okkar að skilja hvaða hluta vefsíðunnar þér finnst áhugaverðast og gagnlegast.