Ívið lakari kjörsókn
en í síðustu þingkosningum
Kjordeild 24 IMG 7033
Á kjörstað í morgun. Eyjafréttir/Eyjar.net: TMS

Klukkan 15.00 í dag höfðu 29,2% kjörgengra íbúa í Vestmannaeyjum mætt á kjörstað í Barnaskóla Vestmannaeyja. Er það ívið lakari kjörsókn en á sama tíma í þingkosningunum fyrir þremur árum.

Þá höfðu 964 manns kosið (31,5%) á móti 910 nú, sam­kvæmt upp­lýs­ing­um frá yfir­kjör­stjórn í Vestmannaeyjum. Framkomin utankjörfundaratkvæði eru 597. Á kjörskrá eru 3.115, en til samanburðar voru á kjörskrá fyrir þremur árum 3.063. Kjörfundur er í Barnaskólanum og stendur hann til klukkan 22.00 í kvöld.

Nýjustu fréttir

Álfsnes, kjarnaborun og höfnin
Vestmannaeyjar, eyjan okkar
Dýpkun gengur hægt – betri horfur síðar í vikunni
Spurt og svarað: Arndís María frá Eyjalistanum
Eitt tilboð í Gjábakkakant – samið niður eftir opnun
Frábæru Íslandsmóti í sveitakeppni í Boccia lokið
Átta dagar og engin svör frá ráðherrum
Dýpkun gekk illa í morgun
Eyjafréttir
Friðhelgisyfirlýsing

Þessi vefsíða notar fótspor til að við getum veitt þér bestu notendaupplifun. Upplýsingar um fótspor eru geymdar í vafranum þínum og framkvæma aðgerðir eins og að þekkja þig þegar þú kemur aftur á vefsíðu okkar og hjálpa teymi okkar að skilja hvaða hluta vefsíðunnar þér finnst áhugaverðast og gagnlegast.