Jafntefli niðurstaðan í kaflaskiptum leik ::myndir
ÍBV og Akureyri mættust í kvöld þar sem liðin skildu jöfn 21-21. Leikurinn byrjaði rólega, eftir 12 mínútna leik var staðan 3-3 og markmenn beggja liða að verja vel. Á 15 mínútu skoraði Grétar �?ór Eyþórsson fimmta mark heimamann og kom þeim í 5-4. Eftir það kom mjög slæmur kafli hjá Eyjamönnum en tveimur mönnum fleiri jöfnuðu Akureyringar metin og komust yfir. �?að tók heimamenn um 10 mínútur til að skora sitt næsta mark en það koma á 25 mínútu þegar þeir minnkuðu muninn í 6-10.
Umdeilt atvik átti sér stað á 26 mínútu fyrri hálfleik en þá gáfu dómarar leiksins, Gísli og Hafsteinn, Kára Kristjáni beint rautt spjald. Áhorfendur furðuðu sig á dómnum en dómarar leiksins virtust vita hvað þarna gekk á en Kári átti að hafa gefið Ingimundi Ingimundarsyni olnbogaskot. Eyjamenn náðu að minnka muninn áður en hálfleikurinn var úti en staðan að honum loknum var 12-9 Akureyringum í vil.
Upphaf síðari hálfleiks var eign gestanna en eftir 42 mínútna leik var staðan 10-17 og útlitið svart. í stöðunni 12-17 tekur Arnar Pétursson, þjálfari ÍBV, leikhlé til að vekja lið sig af værum blundi en ef það væri ekki fyrir frábæran leik Stephen Nielsens, markmanni heimamanna, þá væri leikurinn búinn þarna, varði urmul af dauðafærum og gaf heimamönnum veika von. Leikhléið virkaði hjá Arnari og ÍBV minnkaði muninn jafnt og þétt. Á 54 mínútu leiksins jöfnuðu heimamenn metin 20-20 og við tóku æsilegar lokamínútur. Svo fór að bæði lið skoruðu eitt mark í viðbót og jafntefli niðurstaðan 21-21.
Eins og fyrr segir þá geta heimamenn þakkað markmanni sínum, Stephen Nielsen, fyrir þetta stig. Einnig stóð kollegi Nielsens úr marki Akureyringa mjög vel en báðir markmenn vörðu 20 skot eða 49% markvarsla.
Mörk ÍBV skoruðu: Grétar �?ór Eyþórsson 5, Magnús Stefánsson 4, Andri Heimir Friðriksson 3, Dagur Arnarsson 3, Hákon Daði Styrmisson 2, Einar Sverrisson 2, Brynjar Karl �?skarsson 1 og Nökkvi Dan Elliðason 1.
Stephen Nielsen var frábær og varði 20 skot þar af eitt víti.
Næsti leikur strákanna er gegn nýliðum Víkinga í Eyjum á föstudaginn klukkan 18.30

Nýjustu fréttir

Frábær árangur FÍV – Eyjakonfekt til Tromsø
Íþróttamaður mánaðarins – Helgi Ólafsson
Baldur á leið til Eyja
Ekki brotna! Fræðsla og forvarnir um beinheilsu
Margrét aðstoðar Miðflokkinn
Herrakvöld fótboltans
Fundur bæjarstjórnar í beinni
Samgöngur og sannindi
Eyjafréttir
Friðhelgisyfirlýsing

Þessi vefsíða notar fótspor til að við getum veitt þér bestu notendaupplifun. Upplýsingar um fótspor eru geymdar í vafranum þínum og framkvæma aðgerðir eins og að þekkja þig þegar þú kemur aftur á vefsíðu okkar og hjálpa teymi okkar að skilja hvaða hluta vefsíðunnar þér finnst áhugaverðast og gagnlegast.