Jólatónleikar Kórs Landakirkju í kvöld
Árlegir jólatónleikar Kórs Landakirkju verða miðvikudaginn 16. desember og hefjast klukkan 20.00. Einsöngvari er Einar Clausen, tenór. Stjórnandi kórsins er Kitty Kovács og einleikari Balázs Stankowsky, fiðluleikari. Guðlaugur �?lafsson er ein af stoðum kórsins auk þess að stýra Herjólfi. Hann lofar skemmtilegum tónleikum og vekur athygli á því að þetta eru einu jólatónleikarnir í Eyjum þetta árið.
�??Samkvæmt venju verða tónleikarnir tvískiptir, fyrri hlutinn fer fram í Safnaðar heimilinu en sá síðari í kirkjunni,�?? sagði Guðlaugur. Dagskrá tónleikanna er fjölbreytt, leikin verður jólatónlist, klassísk tónlist og tónlist af léttara tagi. �??Við erum búin að æfa stíft frá því í september þannig að ég held ég geti lofað góðum tónleikum. Ekki skemmir að fá þá Einar og Balázs til liðs við okkur. Samkvæmt hefðinni verður endað á Heims um ból við kertaljós. �?etta er orðin áratuga hefð hjá kórnum og er góður vegvísir fyrir komandi hátíð,�?? sagði Guðlaugur.

Nýjustu fréttir

Bæjarstjórn gagnrýnir boðaðan niðurskurð til Herjólfs
ÍBV vann öruggan sigur á Stjörnunni – Sandra fór á kostum
Heimir Hallgrímsson heldur varnarnámskeið í Eyjum í desember
Vestmannaeyjabær leggur sex milljónir í hlutafjáraukningu í Eyjagöngum
Skálað og skrafað í Miðstöðinni – myndir
Eyjakonur vilja halda í við topplið Hauka
Glæsileg söngveisla þriggja kóra í Eyjum
Þoka hér en ekki þar
Eyjafréttir
Friðhelgisyfirlýsing

Þessi vefsíða notar fótspor til að við getum veitt þér bestu notendaupplifun. Upplýsingar um fótspor eru geymdar í vafranum þínum og framkvæma aðgerðir eins og að þekkja þig þegar þú kemur aftur á vefsíðu okkar og hjálpa teymi okkar að skilja hvaða hluta vefsíðunnar þér finnst áhugaverðast og gagnlegast.