Jón Jónsson á Háaloftinu á laugardag
Laugardaginn 2. apríl mun Jón Jónsson stíga á svið á Háaloftinu í Höllinni ásamt hljómsveit sinni. Allt of langur tími er liðinn síðan Jón Jónsson hélt tónleika í fullri lengd í eyjunni fögru og því mikil tilhlökkun í hans herbúðum. Í desember seldist upp á tvenna tónleika með Johnny Jay á Græna hattinum á Akureyri og það sama var uppi á teningnum í Austurbæ og því er upplagt að tryggja sér miða í tæka tíð. Á tónleikum sínum í desember naut Jón Jónsson í fyrsta sinn fulltingis blásturshljóðfæraleikara og þótti það setja skemmtilegan brag á heildarmyndina og því verða þeir ekki skildir eftir heima. Once you go brass you can’t go back. Jón Jónsson gaf út plötuna Heim fyrir jólin 2014 og hafa lög á borð við Gefðu allt sem þú átt, Endurgjaldslaust, Ykkar koma og Heltekur minn hug fengið að óma á útvarpsstöðum landsins. Platan Wait for Fate sló einnig rækilega í gegn þegar hún kom út árið 2011 og er aldrei að vita nema lög eins og Kiss in the Morning, Sooner or Later, Always Gonna Be There og When You�??re Around fái að hljóma þann 15. apríl. Jón mun þó ekki taka �?jóðhátíðarlagið, Ljúft að vera til. Djók, hann tekur það og reiknar með að allir syngi með..! Jón Jónsson er þekktur fyrir sína hlýlegu og einlægu sviðsframkomu og því ættu gestir að reikna með notalegri kvöldstund þar sem vel valdir tónar fá að hljóma í bland við ekki svo vel valda brandara.
Boðið verður upp á að borða á undan, en þar er takmarkað sætapláss og því um að gera að hafa samband við Einar Björn í síma 698-2572 sem allra fyrst.
Matseðill:
Steikar�?�burger�?� með mossarella, blaðlaukspestó, coktiletómötum, parmaskinku, basil-majó og sætkartöflufranskar 2.900kr
Steikar�?�burger�?� með beikonsultu, cheddar, sveppakurli, eggjum, klettakáli og krullufranskar 2.900kr
Kjúklingur fylltur með basiliku, tómötum, mozzarella, chorizó ásamt tagliatelle, sætkartöflusalati og basil-bernaise 3.900kr
Forssala á tónleikana er í fullum gangi í Tvistinum og er miðaverð á þá í forsölu kr. 3.000,- en kr. 4.000,- við hurð á tónleikakvöldi.
Húsið opnar kl. 21.00 og tónleikarnir hefjast kl. 22.00

Nýjustu fréttir

ÍBV tapaði gegn Fram á Lambhagavellinum
Ólíklegt að höfnin opni um helgina
Stærstu viðskiptafréttir í Eyjum á næsta leiti?
Svava Tara hjá Sölku fer yfir sumartískuna 2026
Eyjan okkar
Brjóstaskimun í Eyjum
Tvö fyrirtæki frá FÍV komin í úrslit fyrirtækjasmiðju
Ómálefnaleg veiðiráðgjöf á hvölum
Eyjafréttir
Friðhelgisyfirlýsing

Þessi vefsíða notar fótspor til að við getum veitt þér bestu notendaupplifun. Upplýsingar um fótspor eru geymdar í vafranum þínum og framkvæma aðgerðir eins og að þekkja þig þegar þú kemur aftur á vefsíðu okkar og hjálpa teymi okkar að skilja hvaða hluta vefsíðunnar þér finnst áhugaverðast og gagnlegast.