Júníus Meyvant gefur út sína fyrstu hljómplötu í júlí
Júníus Meyvant lauk nýverið við upptökur á sinni fyrstu hljómplötu sem hefur verið í vinnslu um nokkurt skeið. Platan ber heitið Floating Harmonies og kemur hún út 8. júlí nk. Platan kemur út um allan heim en verður fáanleg í eiginlegum eintökum í Evrópu fyrst um sinn. �?tgáfufyrirtækið Record Records gefur út plötuna.
Nú þegar hefur Júníus Meyvant sent frá sér nýtt lag af plötunni og er það komið út og ber það heitið Neon Experience. Lagið gefur gott dæmi um það sem vænta má af væntanlegri plötu Júníusar. Floating Harmonies var tekin upp á Íslandi í Orgelsmiðjunni, Finnlandi og fleiri stöðum. Upptökumenn voru Magnús �?der, Finnur Hákonarson, Andri �?lafsson og Júníus Meyvant. Hljóðblöndun var í höndum Magnúsar �?der og tónjöfnun (e. Mastering) í höndun Glenn Shick.
Hljómsveit Júníusar er skipuð Árna Magnússyni, Kristofer Rodriguez og bræðrum Júníusar, þeim Guðmundi �?skari og �?lafi Rúnari. Plötuumslagið er listaverk eftir Júníus Meyvant.
Visir.is greindi frá.

Nýjustu fréttir

Bæjarstjórn gagnrýnir boðaðan niðurskurð til Herjólfs
ÍBV vann öruggan sigur á Stjörnunni – Sandra fór á kostum
Heimir Hallgrímsson heldur varnarnámskeið í Eyjum í desember
Vestmannaeyjabær leggur sex milljónir í hlutafjáraukningu í Eyjagöngum
Skálað og skrafað í Miðstöðinni – myndir
Eyjakonur vilja halda í við topplið Hauka
Glæsileg söngveisla þriggja kóra í Eyjum
Þoka hér en ekki þar
Eyjafréttir
Friðhelgisyfirlýsing

Þessi vefsíða notar fótspor til að við getum veitt þér bestu notendaupplifun. Upplýsingar um fótspor eru geymdar í vafranum þínum og framkvæma aðgerðir eins og að þekkja þig þegar þú kemur aftur á vefsíðu okkar og hjálpa teymi okkar að skilja hvaða hluta vefsíðunnar þér finnst áhugaverðast og gagnlegast.