Kæru smiðir, hárgreiðslufólk og píparar!
eftir Víði Reynisson
10. nóvember, 2024
Vidir Reynis Ads 24
Víðir Reynisson

Lokun ehf-gatsins snýst um að tekjur einstaklinga umfram 1,3 milljónir á mánuði beri sama skatt – hvort sem þær eru teknar út sem arður eða laun. Lokun ehf-gatsins hefur þess vegna engin áhrif á fólk sem er með mánaðarlegar tekjur undir þessum mörkum. Þetta þarf að vera alveg á hreinu.

Ég er húsasmiður að mennt og starfaði sem smiður í 10 ár áður en ég byrjaði að vinna við almannavarnir. Og ég get lofað ykkur því að ég fór ekki í pólitík til að hækka skatta á smiði, hárgreiðslufólk og pípara. Bara alls ekki. Enda hefur Samfylkingin engin áform um sérstakar skattahækkanir á þessar stéttir frekar en aðrar.

En ég gekk beint í gildruna hjá Stefáni Einari í Spursmálum vikunni. Það mátti skilja mig sem svo að ég væri sammála fullyrðingu hans um að Samfylking ætlaði að hækka skatta á smiði, hárgreiðslufólk og pípara. Og Morgunblaðið sló því síðan upp í fyrirsögn. Ég var ekki nægjanlega skýr en leiðrétti það hér með.

Skattaglufa fyrir fólk með fleiri milljónir á mánuði

Ehf-gatið er skattaglufa sem lýsir sér í því að fólk sem er með eigin rekstur, og hefur tekjur umfram 1,3 milljónir á mánuði, getur í ýmsum tilvikum greitt mun lægri skatta en launamaður á sömu tekjum. Ástæðan er sú að af launum umfram 1,3 milljónir á mánuði þarf að greiða tekjuskatt í efsta þrepi og auðvitað tryggingagjald, sem er samanlagt yfir 52%. Skattur á arð er hins vegar 37,6% þegar búið er að taka tillit til tekjuskatts fyrirtækja og fjármagnstekjuskatts. Þar munar nokkuð miklu.

En eins og áður segir þá hefur ehf-gatið engin áhrif hjá fólki sem er með minna en 1,3 milljónir króna í mánaðartekjur. Það hefur hverfandi áhrif upp að 2 milljónum á mánuði – en talsverð áhrif fyrir fólk sem er með fleiri milljónir á mánuði í tekjur. Þar myndast þessi skattaglufa sem við í Samfylkingunni viljum skrúfa fyrir.

Það er jafnræðismál og snýst líka um skilvirkni. Á þetta hafa margir bent, ekki bara Samfylkingin, heldur líka Alþjóðagjaldeyrissjóðurinn (AGS), fjármálaráðuneytið og Alþýðusamband Íslands (ASÍ).

Lokum ehf-gatinu

Það eru margar leiðir til að loka ehf-gatinu og öll hin Norðurlöndin hafa gert þetta fyrir löngu, hvert með sínum hætti. Við í Samfylkingu horfum til útfærslunnar í Noregi – en aðalatriðið er ekki hvaða leið er farin, heldur að það verði vandað vel til verka við útfærsluna þannig að hún virki nákvæmlega eins og við höfum sagt að hún eigi að gera.

Samfylkingin er tilbúin í þetta verkefni og það er löngu tímabært. Einstaklingar í rekstri munu þó að sjálfsögðu áfram geta dregið frá allan kostnað við sinn rekstur. Að loka ehf-gatinu snýst ekki um að breyta því. Og loks er rétt að taka fram að langflestir iðnaðarmenn eru launamenn og aðeins brot af þeim eru bæði sjálfstætt starfandi og með yfir 1,3 milljónir í mánaðartekjur.

Með því að loka ehf-gatinu aukum við jafnræði og skilvirkni í skattkerfinu án þess að hækka skatta á almennt launafólk, smiði, hárgreiðslufólk eða pípara. Og það skilar umtalsverðum tekjum til brýnna verkefna að koma í veg fyrir að þeir sem eru með mjög háar tekjur notfæri sér ehf-gatið til að koma sér undan greiðslum til samfélagsins upp á marga milljarða á ári.

Samfylkingin lækkar kostnað heimila og fyrirtækja

Samfylkingin ætlar ekki að hækka skatta á vinnandi fólk. Sjálfstæðisflokkurinn hefur gert nóg af því að hækka kostnað heimila og fyrirtækja – með því að hækka vexti, hækka verð og hækka skattbyrði venjulegs vinnandi fólks, jafnt og þétt, frá árinu 2013. Samfylkingin ætlar að lækka kostnað heimila og fyrirtækja. Með því að gera það sem þarf til að negla niður vexti og verðbólgu – með því að taka til í ríkisrekstrinum, fjölga íbúðum strax með bráðaaðgerðum, lögfesta stöðugleikareglu og samþykkja hallalaus fjárlög sem fyrst. Og já, til þess þarf vissulega að afla tekna með sanngjörnum hætti.

Langstærsta vandamál minni fyrirtækja og einyrkja er óstöðugleikinn sem ríkisstjórnin hefur leitt yfir landið: Þessir alltof háu vextir, verðbólga, húsnæðisverð, stefnuleys og skortur á fyrirsjáanleika er það sem er að gera út af við fyrirtækin í landinu núna.

Samfylkingin ætlar að laga þetta. Við ætlum að hrista upp í kerfinu og laga Ísland þannig að það fari að virka aftur fyrir venjulegt fólk, og þar með talið smiði, hárgreiðslufólk og pípara – fáum við til þess traust í kosningunum þann 30. nóvember.

 

Víðir Reynisson

Höfundur er húsasmiður og oddviti Samfylkingarinnar í Suðurkjördæmi.

Facebook
X
LinkedIn
Pinterest
Reddit
Email
Print
Skoða blaðið á netinu
Forsida 17 Tbl EF Min
17. tbl. 2024

NÝBURAR

Drengursnorrason
23. október 2024
Drengur
Landspítalinn, Reykjavík.
Svanhildur Eiríksdóttir og Sindri Sigfússon

NÝBURAR

Lovisu
8. október 2024
Stúlka
Landspítalinn, Reykjavík.
Lovísa Jóhannsdóttir og Jökull Andri Sigurðsson

NÝBURAR

462560821 8781643355208571 772013136079801246 N
17. október 2024
Drengur
Landspítalinn, Reykjavík.
Aníta Björk Friðriksdóttir og Sigurbjörn Þórður Árnason.

NÝBURAR

Tandri
13. september 2024
Drengur
Hsu, Vestmannaeyjum.
Dagur Arnarsson og Svava Tara Ólafsdóttir.

NÝBURAR

Bfec0ecf E4f8 466a 89f9 94c607ba1ec5
24. ágúst 2024
Drengur
Landspítalinn, Reykjavík.
Óskar Elías Zoega Óskarsson og Díana Ólafsdóttir

NÝBURAR

Natan Orn
14. ágúst 2024
Drengur
Landspítalinn, Reykjavík.
Þórey Lúðvíksdóttir og Elías Skæringur Guðmundsson

NÝBURAR

F4c5612c Ae8a 4d77 B83d C5f14f2007fe
26. september 2024
Stúlka
Landspítalinn, Reykjavík.
Þorgeir Þór Friðgeirsdóttir og Elín Inga Halldórsdóttir

NÝBURAR

Moller
20. september 2024
Drengur
Landspítalinn, Reykjavík
William Thomas Möller og Jenný Guðnadóttir.

NÝBURAR

E50c5f3f Ddd5 4ee2 8685 Dad7e0e417ad
2. ágúst 2024
Stúlka
Fæðingadeild HVE, Akranes
Sigurdís Egilsdóttir og Gunnlaugur Örn Guðjónsson

NÝBURAR

Drengur Hristov
2. ágúst 2024
Drengur
Landspítalinn, Reykjavík
Todor Hristov og Marta Möller

NÝBURAR

Nýburi
30. júlí 2024
Stúlka
Heimahúsi á Dalvík
Alexandra Ósk Gunnarsdóttir og Brynjar Ingi Óðinsson

NÝBURAR

Nýfædd stúlka.
4. júlí 2024
Stúlka
Landspítalinn, Reykjavík
Theodóra Ágústsdóttir & Carlos Guani

NÝBURAR

IMG 3174
15. júlí 2024
Drengur
Balingen, Þýskalandi
Sandra Erlingsdóttir og Daníel Þór Ingason

NÝBURAR

tryggvason
30. júní 2024
Drengur
Reykjavík
Tryggvi Stein Ágústsson og Guðný Erla Guðnadóttir

NÝBURAR

nyburar
4. júlí 2024
Drengur
Reykjavík
María Rós Sigurbjörnsdóttir og Bjarni Heimir Kristinsson

NÝBURAR

jon
20. júní 2024
Drengur
Landspítalinn, Reykjavík
Logi Snædal Jónsson og Svala Björk Hólmgeirsdóttir

NÝBURAR

Admin Ajax
10. júlí 2024
Stúlka
Landspítalinn, Reykjavík
Unnur Birna Hallgrímsdóttir og Guðmundur Sundström

NÝBURAR

IMG 2282 940x940
29. júní 2024
Stúlka
Landspítalinn, Reykjavík
Petrúnella Aðalheiður Kristjánsdóttir og Felix Örn Friðriksson

NÝBURAR

IMG 2234 800x800
28. júní 2024
Stúlka
Landspítalinn, Reykjavík
Helen Dögg Karlsdóttir og Gísli Ingi Gunnarsson
Mest lesið
Fylgstu með

Skráðu þig á fáðu nýjustu tilkynningar fyrst