Kevin Bru til liðs við ÍBV

Knattspyrnudeild ÍBV hefur samið við franska miðjumanninn Kevin Bru. Hann hefur fengið leikheimild með liðinu og mun leika með ÍBV út yfirstandandi keppnistímabil. Þessu er greint frá í frétt á heimasíðu ÍBV.

Kevin hefur leikið fjölda landsleikja fyrir Máritíus sem er eyríki á Indlandshafi. Foreldrar hans eru þaðan. Áður hafði hann verið í U18 og U19 landsliðum Frakklands.

Fyrsta leikinn sinn spilaði hann fyrir Rennes þegar hann var sautján ára. Þá lék hann einnig fjögur tímabil með Ipswich í Championship deildinni þar sem hann spilaði hátt í 100 leiki.

Í lok fréttar býður ÍBV Kevin velkominn til Vestmannaeyja.

Nýjustu fréttir

Nærri 8.500 gestir sóttu IceFish
Vatnslekinn rakinn til ónýtrar lagnar við Sprönguna
Eyjablikksmótið fer fram í Vestmannaeyjum um helgina
Síðasti opni fundur Vina í bata á mánudag
ÍBV tapaði með sex mörkum á Akureyri
Elmar með tíu stoðsendingar í sigri Nordhorn
Frá borholusjó til flögusalts
46 íbúðir í byggingarferli í Eyjum – 20 fullbúnar en ónotaðar
Eyjafréttir
Friðhelgisyfirlýsing

Þessi vefsíða notar fótspor til að við getum veitt þér bestu notendaupplifun. Upplýsingar um fótspor eru geymdar í vafranum þínum og framkvæma aðgerðir eins og að þekkja þig þegar þú kemur aftur á vefsíðu okkar og hjálpa teymi okkar að skilja hvaða hluta vefsíðunnar þér finnst áhugaverðast og gagnlegast.