Kostnaður við hönnun á nýjum Herjólfi orðinn 147 milljónir
Kostnaður við hönnun á nýjum Herjólfi, sem siglir milli lands og Eyja, var orðinn rúmar 147 milljónir króna í september síðastliðinn.
�?etta kemur fram í svari innanríkisráðherra við fyrirspurn Ásmundar Friðrikssonar, þingmanns Sjálfstæðisflokksins.
Í svarinu kemur fram að kostn­aður við ráðgjöf og sérfræðiaðstoð vegna hönnunar hafi numið 136,8 milljónir króna, og kostnaður vegna vatnslíkanprófana erlendis numið 139.200 evrum og var greitt fyrir þá vinnu um 21,5 milljónir króna.
Í svari við fyrirspurn Ásmundar um hver sé viðbótarkostn­aður vegna lengingar ferjunnar um 4,2 metra og tankprófana á stærri ferju segir að mat ráðgjafa Vegagerðarinnar sé að hann sé óverulegur – innan við tvö til fjögur prósent – þar sem fyrst og fremst sé um aukið stálmagn að ræða. Tilboð norska fyrirtækisins Polarkonsult í viðbótartankprófanir nemi 64.900 evrum, eða um 9,4 milljónir króna.
Ásmundur spurði jafnframt hversu hár hönnunarkostn­aður nýrrar ferju hafi upphaflega verið áætlaður.
�??Algengt er að smíði og hönnun sé boðin út saman. Miðað er við að hönnunarkostn­aður ferju af þessari stærðargráðu geti numið allt að 15% af heildarkostnaði. Ákveðið var að skipta verkefninu upp og bjóða út fyrsta hluta hönnunar sérstaklega. Áætlaður hönnunarkostn­aður var 800.000 evrur (um 116 millj. kr.), þar af voru áætlaðar 300.000 evrur (44 millj. kr.) í prófanir og hermanir. Undanskilið í hönnunarkostnaði var eftirlit með hönnun, ráðgjöf við vinnuhóp, þátttaka í hermun, frekari prófanir o.fl.,�?? segir í svari innanríkisráðherra.
vísir.is greindi frá.

Nýjustu fréttir

Leggja til tvöfalt meiri makrílveiði á næsta ári
Góður afli en erfiðlega gekk að finna ýsu
Framkvæmdir víða um bæinn – myndband
Má skipta liði?
Síldarveiðar í fullum gangi hjá Vinnslustöðinni
Emil og félagar í U17 áfram í næstu umferð undankeppni EM 2027
Íris hvetur þingmenn til að skipuleggja ferðina út frá „löngu leiðinni“
Göngustígur kominn að Sjónarhorni Flakkarans
Eyjafréttir
Friðhelgisyfirlýsing

Þessi vefsíða notar fótspor til að við getum veitt þér bestu notendaupplifun. Upplýsingar um fótspor eru geymdar í vafranum þínum og framkvæma aðgerðir eins og að þekkja þig þegar þú kemur aftur á vefsíðu okkar og hjálpa teymi okkar að skilja hvaða hluta vefsíðunnar þér finnst áhugaverðast og gagnlegast.