Kristín í Eldheimum sæmd fálkaorðunni
Orðuhafar með forsetahjónunum, Höllu Tómasdóttur og Birni Skúlasyni. Kristín er lengst til hægri á myndinni. Mynd frá forsetaembættinu.

Kristín Jóhannsdóttir, sem stýrir Eldheimum í Vestmannaeyjum er meðal þeirra fjórtán sem sæmd voru heiðursmerki hinnar íslensku fálkaorðu á Bessastöðum í dag. Fálkaorðuna hlutu sjö karlar og sjö konur. Fálkorðuna fékk Kristín fyrir frumkvöðlastarf í þágu menningar- og ferðamála í heimsbyggð.

Hin íslenska fálkaorða er íslensk heiðursviðurkenning sem veitt er einstaklingum, bæði íslenskum og erlendum, en forseti Íslands sæmir íslenska ríkisborgara fálkaorðunni tvisvar á ári, 1. janúar og 17. júní.

Þau hlutu fálkaorðuna:

  • Baka Murughan Kamallakharan, frumkvöðull og framkvæmdastjóri, fyrir störf í þágu íslenskra nýsköpunarfyrirtækja
  • Brian Pilkington myndlistarmaður fyrir framlag til myndskreytinga og barnabókmennta
  • Edvarð Júlíus Sólnes, prófessor emeritus í umhverfis- og byggingarverkfræði, fyrir brautryðjendastörf á sviði jarðskjálftavarna og umhverfisverndar
  • Geirlaug Þorvaldsdóttir hóteleigandi fyrir framlag til ferðaþjónustu, menningar og verðveislu íslenskrar myndlistar
  • Glódís Perla Viggósdóttir knattspyrnukona fyrir afreksárangur í knattspyrnu
  • Íris Inga Grönfeldt íþróttafræðingur fyrir framlag til íþrótta og heilsueflingar barna, unglinga og fullorðinna í heimabyggð
  • Jón Þór Hannesson framleiðandi, hljóðmeistari og kvikmyndagerðarmaður fyrir brautryðjendastarf í kvikmyndagerð
  • Jónas Karl Þorvaldsson, sviðsstjóri hjá Landhelgisgæslunni, fyrir framlag til friðargæslustarfa og öryggismála
  • Kristín Jóhannsdóttir safnstjóri fyrir frumkvöðlastarf í þágu menningar- og ferðamála í heimabyggð
  • Magnea Jóhanna Matthíasdóttir, rithöfundur og þýðandi, fyrir framlag til þýðinga og ritstarfa
  • Sigurþóra Bergsdóttir framkvæmdastjóri fyrir að skapa úrræði sem bætir aðgengi að stuðningi og ráðgjöf fyrir ungt fólk á Íslandi
  • Sólveig Þorsteinsdóttir, bókasafns- og upplýsingafræðingur, fyrir brautryðjandastörf við uppbbyggingu bókasafna og landsaðgengis að rafrænum gagnaveitum
  • Þorsteinn Tómasson plöntuerfðafræðingur fyrir framlag til plöntukynbóta í þágu landbúnaðar, skógræktar, garðyrkju og líftækniiðnaðar
  • Þórir Hergeirsson handboltaþjálfari fyrir afreksferil í þjálfun og framlag til handbolta kvenna

 

Í orðunefnd embættis forseta Íslands eiga nú sæti:

  • Kristín Ingólfsdóttir, fv. háskólarektor, formaður.
  • Bogi Ágústsson fréttamaður.
  • Drífa Hjartardóttir, fv. Alþingismaður.
  • Sigurbjörn Árni Arngrímsson skólameistari.
  • Sigríður Snævarr, fv. Sendiherra.

 

Nýjustu fréttir

Upphitun sem lofar sannkallaðri Þjóðhátíðarveislu 
Fullfermi á báðum togurum
Dýpkun tefst í Landeyjahöfn – uppfært
Framlag í Ferðasjóð íþróttafélaga tvöfaldast
Fullorðinsfimleikar hjá Rán
Tómas Bent með sigurmark Hearts
Tilboð langt undir áætlun í dýpkun Landeyjahafnar
Loðnan berst til Eyja
Eyjafréttir
Friðhelgisyfirlýsing

Þessi vefsíða notar fótspor til að við getum veitt þér bestu notendaupplifun. Upplýsingar um fótspor eru geymdar í vafranum þínum og framkvæma aðgerðir eins og að þekkja þig þegar þú kemur aftur á vefsíðu okkar og hjálpa teymi okkar að skilja hvaða hluta vefsíðunnar þér finnst áhugaverðast og gagnlegast.