Kynningar í Eyjum á námsframboði Keilis
Keilir – Miðstöð vísinda, fræða og atvinnulífs verður með kynningu á námsframboði skólans í Vestmannaeyjum á fimmtudaginn 19. mars næstkomandi. Um morguninn verður almenn námskynning í Framhaldsskólanum í Vestmannaeyjum. Sérstök áhersla verður lögð á nám á háskólastigi við skólann, en í Keili er bæði hægt að leggja stund á tæknifræðinám til BS gráðu á vegum Háskóla Íslands og átta mánaða leiðsögunám í ævintýraferðamennsku í samstarfi við Thompson Rivers University í Kanada.
Eftir hádegi verðum kynning á Háskólabrú Keilis í Visku, fræðslu- og símenntunarmiðstöð Vestmannaeyja. Um 1.200 einstaklingar hafa útskrifast úr náminu frá upphafi sem er ætlað einstaklingum sem hafa ekki lokið stúdentsprófi. Að loknu náminu uppfylla nemendur inntökuskilyrði í háskóla hérlendis og erlendis. Keilir eini skólinn sem býður upp á aðfararnám í samstarfi við Háskóla Íslands, sem þýðir að útskrifaðir nemendur Háskólabrúar hafa úr mestu námsframboði að velja af íslenskum skólum sem bjóða upp á aðfaranám.
Að lokum verður Flugakademía Keilis með kynningu á flugnámi og sýningu á einni kennsluvélum skólans á Vestmannaeyjaflugvelli. Hátt í tvö hundruð nemendur stunda nú nám í Flugakademíunni, þar af um helmingur í flugnámi. Flugakademía Keilis starfrækir sjö Diamond kennsluvélar, þær nýjustu og fullkomnustu á landinu, og er eini skólinn á Íslandi sem býður upp á samtvinnað flugnám til atvinnuflugmannsréttinda. �?ar byrjar flugneminn á fyrsta degi í þjálfun til atvinnuflugmannsskírteinis í stað þess að ljúka fyrst einkaflugmannsréttindum. Námið er þaulskipulagt, bæði bóklegt og verklegt, er lánshæft frá fyrsta degi og tekur aðeins átján mánuði í fullu námi.
�?ess má geta að bæði innlendir og erlendir nemendur hjá Keili fljúga mikið á Vestmanneyjaflugvöll, enda hentar hann afskaplega vel til þjálfunar flugmanna.
Kynnið ykkur fjölbreytt námsframboð í Keili á www.keilir.net og á www.facebook.com/keilir.

Nýjustu fréttir

Hélt að verið væri að gera grín í sér
Útlaginn gefur út sitt fyrsta lag: „Þetta er bara byrjunin“
Frá lofti og landi: Uppbygging Laxeyjar tekur á sig mynd
Sólarlag Guðrúnar kemur út í dag
ÍBV stelpurnar mæta Þrótti R. í undanúrslitum Mjólkurbikarsins
Karfi og blandaður afli hjá Eyjunum
Innblásturinn er alls staðar
Krakkafjör í Hvítasunnukirkjunni
Eyjafréttir
Friðhelgisyfirlýsing

Þessi vefsíða notar fótspor til að við getum veitt þér bestu notendaupplifun. Upplýsingar um fótspor eru geymdar í vafranum þínum og framkvæma aðgerðir eins og að þekkja þig þegar þú kemur aftur á vefsíðu okkar og hjálpa teymi okkar að skilja hvaða hluta vefsíðunnar þér finnst áhugaverðast og gagnlegast.