Land & synir, Sóldögg og Maus mæta á �?jóðhátíð
Enn bætist við þá listamenn sem koma fram á �?jóðhátíð Vestmannaeyja 2015. Nú bætast þrjár gamalkunnar sveitir í dagskrána Land & synir, Sóldögg og Maus. “nostalgían verður tekin alla leið með þessum frábæru listamönnum.” segir í tilkynningu �?jóðhátíðarnefndar.
Fyrir í dagskránni má finna hljómsveitirnar FM Belfast, AmabAdamA, Páll �?skar, Ný Dönsk og Júníus Meyvant. Sem og Sálina hans Jóns míns sem flytur �?jóðhátíðarlagið í ár.
Forsala aðgöngumiða hófst í morgun á dalurinn.is. Verð aðgöngumiða hækkar hjá öllum gestum nema félagsmönnum ÍBV. Hækkunin er minnst hjá þeim sem kaupa í fyrri forsölu en mest hjá þeim sem kaupa fullu verði seint í júlí, að lokinni síðari forsölu. Miðaverð hefur haldist óbreytt í þrjú ár eða frá 2012.

Í fyrra var boðið upp á laugardagspassa í fyrsta sinn, mæltist það vel fyrir og verður passinn í boði á nýjan leik. Í ár verður boðið upp á aðra nýjung, en það er hátíðarpassi.
“�?eir sem kaupa hátíðarpassann eru að kaupa sér ákveðin fríðindi. Aðeins takmarkað magn miða er í boði en þeir sem tryggja sér passann geta valið úr þremur bestu ferðunum með Herjólfi til og frá Eyjum. �?eir fá flýtimeðferð á bryggjunni, glaðning frá styrktaraðilum við komuna til Eyja, tíu fríar ferðir í bekkjabíl eða strætó, eina fría máltíð í veitingatjaldinu í Herjólfsdal og tvo frímiða í sund.” sagði Hörður Orri Grettisson, �?jóðhátíðarnefnd, í samtali við Eyjafréttir.

Nánar í blaði Eyjafrétta.

Nýjustu fréttir

Val á endurskoðanda aftur til bæjarráðs
Appelsínugul viðvörun: Vara við vindhviðum yfir 40 m/s þegar börn fara í skóla
Hver er bestur, Óli prestur
SFS: Ekki öll nótt úti um stærri loðnukvóta
Bæjarstjórn fundar í dag – bein útsending
Sjö ferðir Herjólfs falla niður vegna viðhalds
Herjólfur til Landeyjahafnar í dag og Þorlákshafnar á morgun
Þrjár ólögmætar uppsagnir kalla á skýr svör
Eyjafréttir
Friðhelgisyfirlýsing

Þessi vefsíða notar fótspor til að við getum veitt þér bestu notendaupplifun. Upplýsingar um fótspor eru geymdar í vafranum þínum og framkvæma aðgerðir eins og að þekkja þig þegar þú kemur aftur á vefsíðu okkar og hjálpa teymi okkar að skilja hvaða hluta vefsíðunnar þér finnst áhugaverðast og gagnlegast.