Landsleikurinn í beinni í Höllinni
Í dag, þriðjudag fer fram mikilvægasti landsleikur sem Ísland hefur spilað í knattspyrnu. �?að má leiða að því líkum að ef landsleikurinn fer vel og Íslendingar komast í lokakeppni HM í Brasílíu næsta sumar, muni það hafa í för með sér gríðarlega mikla athygli á íslenska knattspyrnu í heild sinni, fyrir utan allar þær tekjur sem KSÍ fær af því að komast með landsliðið þangað. �?etta gæti þýtt að enn fleiri íslenskir knattspyrnumenn komist í atvinnumennsku og að áhugi á íþróttinni hér heima muni aukast til muna hjá yngri iðkendum. Aukinn áhugi og metnaður skilar sér síðar meir í enn betri árangri og enn fleiri atvinnumönnum. Vonandi ná strákarnir okkar alla leið en það skýrist annað kvöld.
Í Hallarlundi verður leikurinn sýndur í beinni útsendingu. Húsið opnar klukkan 18.00 og útsendingin sjálf hefst klukkan 18.40. Mjög góð aðstaða er fyrir gesti Hallarlundar en allra best er að tryggja sér sæti í leðrinu. Fyrstur kemur fyrstur fær segir máltækið og þannig verður það líka á morgun í Hallarlundi. Tilboð verður á köldum, rétt eins og venjulega. ÁFRAM ÍSLAND!
Fréttatilkynning

Nýjustu fréttir

Ísland vann stórsigur á Úkraínu í undankeppni EM
Blásið til hausttónleika
Leggja til aukaferju með Herjólfi á sumrin
Hörgeyrargarður og ábyrgð okkar gagnvart framtíðinni
Elliði Snær og félagar mæta Úkraínu í kvöld
Bæjarstjórn fundar í dag – bein útsending
Kvöldopnun með afsláttum og uppákomum
Erfitt vor en sterkt sumar hjá Herjólfi
Eyjafréttir
Friðhelgisyfirlýsing

Þessi vefsíða notar fótspor til að við getum veitt þér bestu notendaupplifun. Upplýsingar um fótspor eru geymdar í vafranum þínum og framkvæma aðgerðir eins og að þekkja þig þegar þú kemur aftur á vefsíðu okkar og hjálpa teymi okkar að skilja hvaða hluta vefsíðunnar þér finnst áhugaverðast og gagnlegast.