Landsliðsmaður til KFS
Knattspyrnufélagið Framherjar-Smástund hefur heldur betur fengið til sín liðstyrk fyrir komandi knattspyrnu sumar. En Hjalti Kristjánsson kynnti nýverið fjóra nýja leikmenn.
�??Gunnar Páll Pálsson, miðju- og sóknarmaður fæddur 1991, kom frá Hamri í dag. Hann þykir mjög liðtækur knattspyrnumaður, félagar hans frá Hamri segja hann einn besta Hamarsmanninn í fyrra! Hnn hefur gert 2 mörk í 53 deildarleikjum með Í. H., H. K. og Hamri. Eins er mér sagt, að Gunnar Páll sé drengur góður, það skiptir líka miklu máli. Hjartanlega velkominn, Gunnar Páll!�?? segir Hjalti Kristjánsson, þjálfari KFS í tilkynningu sinni til Eyjafrétta.
Jóhannes �?ór Harðarson, fyrrum landsliðsmaður og núverandi þjálfari meistarflokks karla hjá ÍBV ætlar einnig að spila með KFS í sumar. Hann á að baki sér langan og farsælan feril á fótboltavellinum. 1995�??2000 ÍA, 2000�??2001 MVV Maastricht, 2001�??2002 FC Groningen, 2002�??2003 BV Veendam, FC Groningen 2004�??2006, IK Start 47 2009-2011, Flekkerøy IL 2011 til 2015. �??Já, þessi gæi kom til okkar í dag og mun koma okkur upp í 2. deild með nokkrum til viðbótar!�?? segir Hjalti í tilkynningunni. �??Bæti því við að Sigurvin �?lafsson fær með honum verðugan arftaka í sumar, ef Venni geldur ekki einfaldlega áfram með okkur. �?vílík yfirsýn á vellinum, getur varist, skorað, haldið tempói, róað leikinn og ég veit ekki hvað. Hjartanlega velkominn Joey!
Guðmundur Tómas Sigfússon, f. 1996, kom að láni frá ÍBV í dag. �?essi framliggjandi miðjumaður hefur þegar hrifið okkur í KFS með 4 leikjum í deild, þar sem bombur í stíl við Geira Gringó á æfingu glöddu okkur, en líka mikill skilningur á leiknum og geta til að gera vel við boltann.
Velkominn Guðmundur Tómas.
Kjartan Guðjónsson, f. 1992, er afar fjölhæfur leikmaður. Strax í 3. flokki vakti hann athygli mína og annarra og hefur leikið marga mfl.-leiki svona ungur. Hann hefur 14 mörk í 61 leik með KFS, ÍBV, Aftureldingu og Hamri. Bjóðum Kjartan hjartanlega velkominn til baka.�?? sagði Hjalti og bætti við. �??Eftir að hafa fengið alla þessa leikmenn til viðbótar við fyrirsitjandi snillinga KFS hlýtur krafan um árangur að aukast. �?etta gæti orðið okkar stærsta tímabil, þótt við sláum varla við tímabilinu 2002 strax.�??

Nýjustu fréttir

ÍBV með bakið upp við vegg eftir tap gegn Val
Eyjarnar landa í Grindavík
Sterk uppbygging og skýr framtíðarsýn
Skortur á félagslegum tengslum er dauðans alvara
Síðasta Aglow samvera vetrarins
Landeyjahöfn orðin fær á háflóði
Heimsklassa matreiðslumeistarar frá Íslandi á MATEY
Úrslitaeinvígið: Mæta Val á heimavelli
viðburðir
Matey 2022
22. maí 2026
18:00
MATEY Seafood Festival
Eyjafréttir
Friðhelgisyfirlýsing

Þessi vefsíða notar fótspor til að við getum veitt þér bestu notendaupplifun. Upplýsingar um fótspor eru geymdar í vafranum þínum og framkvæma aðgerðir eins og að þekkja þig þegar þú kemur aftur á vefsíðu okkar og hjálpa teymi okkar að skilja hvaða hluta vefsíðunnar þér finnst áhugaverðast og gagnlegast.