Í fréttaskýringu um breytingar á starfsemi Rauðagerðis er rangt farið með að starfsfólk hafi sagt upp. Hið rétta er að því var sagt upp. Upphaf greinarinnar er þannig: �??Í fjárhagsáætlun bæjarins fyrir síðasta ár var gert ráð fyrir verulegum niðurskurði á félagsstarfsemi Rauðagerðis, Féló. Unnið hefur verið að gerð áætlunar, sem nú hefur litið dagsins ljós, til að fylgja eftir samþykkt bæjarstjórnar sem var í óþökk Eyjalistans. Ljóst er að veruleg framúrkeyrsla hefur verið á rekstrinum undanfarið. Hörð viðbrögð urðu þegar ljóst var að skera ætti niður í rekstrinum og mótmæltu bæði foreldrar og krakkar sem nýtt hafa þjónustuna. Ein breytingin er að þjónusta við lengda viðveru fatlaðra barna flyst yfir í Fjöliðjuna Heimaey í haust.
Í fjárhagsáætlun 2015 voru áætlaðar 19.522.000 krónur í rekstur Rauðgerðis en niðurstaðan var krónur 31.242.362. Núna í ár hljóðar áætlun í reksturinn upp á krónur 21.972.000. Mikið var fjallað um málið í Eyjafréttum og virtist komin lending í málið en ekki eru allir sáttir. Starfsfólk hefur sagt upp störfum, m.a. forstöðukonan, Sigþóra Guðmundsdóttir sem í áratugi hefur starfað að félagsmálum barna og unglinga hjá Vestmannaeyjabæ.�??
Í síðustu setningunni er rangt farið með því starfsfólkinu var sagt upp. Er það beðið velvirðingar á þessum mistökum. Nánar í Eyjafréttum.
Myndatexti: Starfsfólk Rauðagerðis. Frá vinstri: Sigríður Inga Kristmannsdóttir, Lilja �?lafsdóttir, Rakel Hlynsdóttir og Sigþóra Guðmundsdóttir. Á myndina vantar Gunnar Karl Haraldsson og Daníel Frey Jónsson.