Í kvöld, frumsýnir Leikfélag Vestmannaeyja gamanleikritið Nei, ráðherra! eftir Ray Cooney í leikstjórn Stefáns Benedikts Vilhelmssonar. Íslensk heimfærsla er eftir Gísla Rúnar Jónsson. Leikarar eru 11 en í allt koma um 30 manns að sýningunni. Nei, ráðherra var sett upp í Borgarleikhúsinu 2011 og gekk frábærlega. Hlaut einróma lof gagnrýnenda og var valin áhorfenda- sýning ársins þegar Grímuverðlaunin voru afhent 2011. �??Inntakið er að ýmsum óþrifnaði hefur ráðherrann ungi sópað undir teppi, atvinnulygarinn sjálfur, en þó aldrei dauðum manni og það á hótelherbergi með viðhaldinu sem er innsti koppur í búri stjórnarandsto�?ðunnar,�?? segir í kynningu Borgarleikhússins. Ray Cooney er Íslendingum að góðu kunnur fyrir gamanleiki á borð við Með vífið í lúkunum, Tveir tvo�?faldir og Viltu finna milljón sem allir hafa notið vinsælda hér á landi. Nei, ráðherra (Out of Order) hlaut hin eftirsóttu Olivier-verðlaun sem besti gamanleikurinn í Bretlandi þegar verkið var frumsýnt.
Leikstjórinn, Stefán Benedikt er Eyjamo�?nnum að góðu kunnur, setti upp Litlu hryllingsbúðina fyrir rétt ári sem gekk mjo�?g vel. Hann starfar sem leikstjóri og leikari og útskrifaðist frá Listaháskólanum 2009. �??Ég leik og leikstýri jo�?fnum ho�?ndum og út allt land með áhugaleikhópum,�?? segir Stefán aðspurður um ferilinn.
�??Ég hef ferðast með leikhópnum Lottu og mitt næsta verkefni er að leikstýra hjá þeim. Ég og konan, Aldís Davíðsdóttir, leikkona rekum Skýjasmiðjuna og settum upp verkið Hjartaspaðar sem var tilnefnt til Grímuverðlaunanna 2013.�?? Eftir Litlu hryllingsbúðina þekkir Stefán vel til Leikfélags Vestmanna- eyja. �??�?að er talsverð áskorun fyrir félagið að taka til sýninga verk sem ekki byggir á tónlist. �?að þarf líka góða leikara til að bera uppi verk eins og Nei, ráðherra. �?að er mikill asi og hraði í leikritinu sem er eitt það fyndnasta sem þú sérð,�?? segir Stefán sem er ánægður með leikarahópinn, sem telur 11 manns. �??�?etta er góður hópur og reynt fólk og ho�?ndlar þetta með bravo�?r. Margir hafa beðið eftir að fá tækifæri til að takast á við eitthvað nýtt. �?að tækifæri nýta þau frábærlega,�?? segir Stefán að lokum og lofar frábærri skemmtun í Kviku næsta miðvikudag. Leikarar eru : Skæringur Óli �?órarinsson, Sandra Rós �?rastardóttir, Bjarni Daníelsson, Ríkey Konráðsdóttir, Óli Bjarni Austfjo�?rð, Unnur Guðgeirsdóttir, Alexander Páll Salberg, Sigríður �?óra Ingadóttir, Kristinn Viðar �?orbergsson, Birta Marinósdóttir og Árni �?orleifsson.
Sýningatímar Nei, ráðherra!
Frumsýning 23.mars kl. 20:00
2.sýning 24.mars kl. 20:00
3.sýning 25.mars kl. 20:00
4.sýning 26.mars kl. 20:00
MIÐASALA í síma 852-1940
�?sóttar pantanir eru seldar klukkustund fyrir sýningu!