Eyjapeyinn Leó Snær Sveinsson verður á Tanganum á laugardaginn og mun halda uppi góðri og þægilegri stemningu á efri hæð Tangans. Leó Snær er nýfluttur aftur til Eyja eftir nokkurra ára dvöl á Norðurey en hefur engu gleymt og mun söngvaskáldið vafalaust taka nokkra þekkta slagara sem allir ættu að fíla. Leó Snær verður á efri hæð Tangans milli 22 og 1 á laugardagskvöldið og er tilvalið fyrir gesti að fá sér snæðing á neðri hæð Tangans á undan. Eins er Happy hour alltaf á drykkjum milli 22 og 23.