Lífæð okkar – Hjartans Heimahöfn

Sumarið 2019 bauðst mér að setjast í Framkvæmda- og hafnar ráð fyrir hönd Bæjarmálafélagsins fyrir Heimaey, áður hafði ég setið í Hafnarstjórn sem varamaður árin 2006-2010 þá fyrir Sjálfstæðisflokkinn.

Vinnan í ráðinu hefur verið bæði gefandi og fjölbreytt. Samstarfið hefur gengið vel í ráðinu og allir að vinna að heilum hug og höfninni fyrir bestu.  Rekstur og fjárhagstaða Vestmannaeyjahafnar er mjög góð þrátt fyrir loðnubrest í tvö ár og brottfall skemmtiferðaskipa vegna Covid.

Verkefnin sem við fulltrúar H-listans höfum lagt áherslu á og unnið að á kjörtímabilinu eru: Samtal við vegagerðina um stórskipakant við Eiði, uppsetning á eftirlitsmyndavélum, kaup á fasteignum til að liðka fyrir skipulagi á Básaskersbryggju, ráðningu hafnarstjóra, hefja undirbúningsvinnu að framtíðarsýn hafnarinnar til næstu 30 ára.

Það sem kom mér mest á óvart þegar ég settist í framkvæmda- og hafnarráð var að ekki væri til stefna eða framtíðarsýn sem unnið væri eftir.

Fyrir all nokkrum árum voru unnar tillögur og útfærslur á stórskipakanti fyrir utan Eiðið en svo virtist sem verkefnið væri stopp eða ekki í neinum farvegi. Því var ákveðið fyrir tveimur árum nánar 22. Apríl 2020 að óska eftir samtali við Vegagerðina um samstarf til að meta framtíðarmöguleika hafnarinnar. Í ljós kom að Vestmannaeyjahöfn átti eftir að vinna töluverða heimavinnu t.d. ljúka við greiningar og skýrslugerð, sú vinna er nú hafin og kominn á skrið undir stjórn hafnarstjóra. Skipafélögin hafa tjáð okkur að áhersla þeirra sé að stækka gámaskip sín og því er deginum ljósara að framtíðarmöguleikar okkar eru að stórskipakantur verði að veruleika fyrir utan Eiði.  Út frá kostnaðargreiningum lagði vegagerðin áherslu á að skoða alla möguleika innan hafnar áður en stórskipakantur fyrir utan Eiði yrði valkostur. Farið var í þá vinnu  og allir möguleikar skoðaðir innan hafnar með hagsmuna aðilum. Leitað var álits Útvegsbænda, Skipfélaganna og skipstjórum þeirra. Niðurstaðan leiðir okkur ávallt aftur að stórskipakantinum ef við ætlum að horfa til framtíðar, aðrir möguleikar eru skammtímalausnir og takmörkunum háðar.

Með áformum um Landeldi á Laxi mun útflutningur aukast verulega og þarf höfnin að vera tilbúinn undir þá aukningu. Sú aukning getur haft það í för með sér að skipafélögin vildu gjarnan koma oftar við hér í Eyjum og þá með stóru skipin sín sem sigla hér framhjá.

Nú hafa skipin í Vestmannaeyja flotanum verið að stækka og hefur það leitt af sér að upptökumannvirkið við Skipalyftuna er orðið of lítið og tekur aðeins lítinn hluta flotans, við því þurfum við að bregðast.

Við fulltúrar H-listans höfum einsett okkur í framkvæmda og hafnarráði að horfa til framtíðar, hvernig við sjáum höfnina okkar takast á við kröfur nútímans og ekki síður áskoranir framtíðarinnar höfnin er jú lífæð samfélagsins okkar hér í Vestmannaeyjum. Í desember sl. ákvað ráðið að hefja vinnu við mótun á framtíðarsýn hafnarinnar og hefur ráðið átt einn fund og munu starfsmenn og hagsmunaaðilar einnig koma að þeirri vinnu undir stjórn hafnarstjóra.

Helstu áherslur í stefnuskránni hjá okkur í H-listanum þegar kemur að hafnarmálum eru að halda áfram með þá góðu vinnu sem hefur farið fram í tengslum við höfnina, að hefja vinnu í samvinnu við atvinnulífið með þurrkví, stórskipakantur við Eiðið, bæta aðgengi og skipulag á og við Básaskersbryggju fyrir viðskiptavini Herjólfs, undirbúa smíði/kaup á nýjum lóðs, fegrun hafnarinnar og hafnarsvæðisins.

Við viljum að höfnin sé fremst í þjónustu við útgerðir og notendur.

Við munum halda ótrauð áfram ef við fáum til þess umboð að vinna áfram með þau góðu og verðugu verkefni sem við höfum farið af stað með.

Arnar Richardsson, aðalmaður í framkvæmda- og hafnarráði.

Höfundur skipar 7. sæti á lista Fyrir Heimaey í komandi sveitarstjórnarkosningum.

Nýjustu fréttir

ÍBV í úrslit eftir sigur gegn Haukum
Erfið staða í Land­eyja­höfn
Tvær flugferðir á dag á meðan beðið er opnunar Landeyjahafnar
Hinkrum við, vöndum okkur betur
ÍBV mætir Tindastól í 16-liða úrslitum Mjólkurbikarsins
Er Herjólfsferð örugg ferð?
Eyjarnar fiskað afar vel að undanförnu
Samgöngur til Vestmannaeyja algerlega óásættanlegar

Góð ráð fyrir siglingu

Sjóveiki

Hvað er sjóveiki?

Sjóveiki er misræmi milli skynfæra líkamans sem senda boð til heilans um hreyfingu – kyrrstöðu.

Þegar einstaklingur er úti á sjó þá nema skynjarar í vökvafylltum gangi í innra eyra hreyfingu og senda boð til heilans að einstaklingur sé á hreyfingu. Augun senda hins vegar boð til heilans um að viðkomandi sé kyrr. Heilinn á erfitt með að vinna úr þessum misvísandi og ósamræmdu upplýsingum og sendir skilaboð til magans um að tæma sig – þ.e. veldur uppköstum.

Einkenni sjóveiki eru þreyta, ógleði, svimi, svitakóf og uppköst.

Góð ráð til að hindra sjóveiki:

  • Góð hvíld daginn fyrir brottför. Að fara seint að sofa og snemma um borð í bát fer ekki vel saman ef fólk er hætt við sjóveiki.
  • Forðist áfenga drykki daginn fyrir brottför
  • Forðist djúpsteiktan, brasaðan eða saltan mat daginn fyrir siglingu.
  • Borðið góðan morgunverð. Borðið gjarnan hvítt brauð, hafragraut og ávexti þó ekki sítrus ávexti.
  • Forðist mikið koffein. Mikið kaffi er ekki það sem maganum líkar fyrir sjóferð.
  • Hafðu mat með þér á sjó. Gott er að hafa samlokur með kjúklingi eða kalkún. Kjötið er fitusnautt og brauðið er róandi í maga. Hafðu endilega eitthvað til að grípa í sem er létt í maga. Bananar eru mjög góðir til að narta í ef þú finnur fyrir ógleði en einnig er gott að hafa létt kex eða annað sem er ekki salt eða fitumikið.
  • Drekkið vel af vatni en einnig er gott er að drekka kóla drykki eða engiferöl í sjóferðinni

Lyf við sjóveiki þ.e. lyf sem slá á einkennin og fást án lyfseðils í apóteki.

  • Koffínátín – fæst án lyfseðils
  • Postafen – fæst án lyfseðils
  • Scopolamin plástur – lyfseðilsskyltEinnig má fá armbönd gegn ferðaveiki sem sumir telja að hjálpi.

Önnur ráð:

  • Engifer er jurt sem nýlega hefur fengið aukna athygli vegna þess að því er haldið fram að hún geti slegið á ógleði sem fylgir sjóveiki. Til forna tuggðu kínverskir sjómenn engiferrót til að draga úr sjóveiki. Flest lyf sem virka á ógleði verka á heilann en engifer virkar aðeins á magann. Ráðlagt er að taka 1000 mg. hylki hálftíma fyrir brottför. Einnig má taka eitt eða tvö 500 mg. hylki sem eru til viðbótar á ferðalaginu. Ekki er ráðlagt að drekka coke með engifertöflum.
  • Piparminta og te eru einnig gömul húsráð við ferðaveiki.
  • Sumum finnst betra að taka sýrujafnandi töflur, Alminox eða slíkt áður en þú heldur á sjó og þá er gott að hafa box með út á sjó.

Hvar í skipinu er best að vera o.fl.

  • Minna finnst fyrir hreyfingu og veltingi ef maður er staddur næst miðju bátsins.
  • Mörgum finnst gott að vera í kulda, t.d.að vera úti á dekki og láta vindinn leika um sig.
  • Matarlykt fer illa í þá sem hætt er við sjóveiki og einnig pústið frá bátnum.

Þungun:

Þungaðar konur sem þjást af sjóveiki mega nota koffinátín í litlum skömmtum en best er að ráðfæra sig við lækni eða lyfjafræðing.
Þunguðum konum er ekki ráðlagt að nota engifer þar sem það er ekki staðfest hvort það geti haft skaðleg áhrif á fóstur.

Eyjafréttir
Friðhelgisyfirlýsing

Þessi vefsíða notar fótspor til að við getum veitt þér bestu notendaupplifun. Upplýsingar um fótspor eru geymdar í vafranum þínum og framkvæma aðgerðir eins og að þekkja þig þegar þú kemur aftur á vefsíðu okkar og hjálpa teymi okkar að skilja hvaða hluta vefsíðunnar þér finnst áhugaverðast og gagnlegast.