Lúðrasveitartónleikar í Hvítasunnukirkjunni á laugardag

Árlegir tónleikar Lúðrasveitar Vestmannaeyja fara fram í Hvítasunnukirkjunni við Vestmannabraut næstkomandi laugardag 6.nóvember kl.16:00 og eru þeir hluti af metnaðarfullri dagskrá Safnahelgar. Tónleikarnir eru öllum opnir og er aðgangseyrir 2500 kr.  Félagar í styrktarfélagi Lúðrasveitarinnar fá að venju frítt inn.

Lúðrasveitin var stofnuð 1939 af Oddgeiri Kristjánssyni og félögum. Sveitin hefur starfað óslitið síðan, sem gerir hana að einni elstu Lúðrasveit landsins. Styrktarfélagakerfið var sett á laggirnar fljótlega eftir stofnun og er einstakt kerfi. Fjöldi fólks hefur styrkt sveitina með árgjaldi og stendur það undir stórum hluta af rekstri sveitarinnar. Sem þakklætisvott heldur Lúðrasveitin árlega tónleika, sem opnir eru öllum en styrktarfélagar greiða ekki aðgangseyri.

Það er ekki sjálfgefið að starfræktar séu Lúðrasveitir í bæjarfélögum af okkar stærðargráðu. Án styrktarfélaga, velvilja bæjarbúa, fyrirtækja og bæjaryfirvalda er slíkur rekstur ekki mögulegur. Við erum afskaplega þakklát fyrir þann mikla stuðning sem við höfum fengið í gegn um árin og fáum enn. Sá stuðningur gerir okkur kleift að viðhalda þeim menningararfi sem í lúðrasveitarstarfinu liggur og stofnað var til að Oddgeiri og félögum.

Tónleikarnir í ár verða óvenju efnismiklir, enda féllu tónleikar niður á síðasta ári og spilarar orðnir óþreyjufullir að fá að spila aftur og þótti erfitt að skera niður. Efnisvalið er fjölbreytt og inniheldur ýmsar tegundir tónlistar. Oddgeirslögin verða að sjálfsögðu á sínum stað, það má finna mars eftir Sousa, lög frá Kanda, Írlandi og svo alls kyns syrpur laga í úr ýmsum stílum tónlistar.

Félagar í Lúðrasveit Vestmannaeyja hlakka til að eiga stund með sem flestum í stóra sal Hvítasunnukirkjunnar.

Nýjustu fréttir

Skýr skilaboð frá flokksmönnum 
Framtíðarsýn og grunngildi – Hvert erum við að fara?
Landeyjahöfn – Þurfum öflugt dæluskip
Viljum frekar byggja upp en að rífa niður 
Dæluskipið Álfsnes á Bíldudal
Ótrúlegt að 1.200 manns taki þátt í prófkjöri í svona litlu samfélagi 
Lagt til að ráðist verði í könnunarveiðar á humri
Vel heppnaðri loðnuvertíð lokið
Eyjafréttir
Friðhelgisyfirlýsing

Þessi vefsíða notar fótspor til að við getum veitt þér bestu notendaupplifun. Upplýsingar um fótspor eru geymdar í vafranum þínum og framkvæma aðgerðir eins og að þekkja þig þegar þú kemur aftur á vefsíðu okkar og hjálpa teymi okkar að skilja hvaða hluta vefsíðunnar þér finnst áhugaverðast og gagnlegast.