Lúkas tekinn á þjóðhátíð - umræðunauðgun
Einu sinni var hundur sem týndist. Nokkrir á samfélagsmiðlum sögðu hundinn hafa mætt hræðilegum örlögum dýraníðings. Fjölmiðlar tóku þátt og sögðu frá kertafleytingum og mótmælum vegna hundsins. ,,Umræðan” tók meintan dýraníðing fyrir og tætti af honum mannorðið. Nokkru síðar kom Lúkas af fjalli ómeiddur.pallvil.blog.is/blog/pall_vilhjalmsson/entry/2176901/
�??Síðustu daga hafa samfélagsmiðlar og fjölmiðlar tekið lúkas á þjóðhátíð í Vestmannaeyjum. Aðalfréttatími R�?V í gærkvöldi var með þjóðhátíðarlúkasinn sem fyrstu frétt. Vitnað var í yfirlýsingu fimm hljómsveita sem vitnaði í ,,umræðuna”, sem R�?V, aðrir fjölmiðlar og samfélagsmiðlar standa fyrir, þar sem krafan sé að bæjaryfirvöld í Vestmannaeyjum hengi út fyrsta fórnarlamb nauðgunar á þjóðhátíð til áminningar um nauðsyn ,,umræðunnar”.
,,Umræðan” telur að bæjaryfirvöld eigi að stilla fórnarlambi kynferðisofbeldis á opinberan stall til að réttlæta umræðu um nauðgun. Mannúðleg málsmeðferð réttarríkisins er algert aukaatriði: ,,umræðan” þarf sitt fórnarlamb.
Ef ,,umræðan” fær sínu fram verður særð, smánuð sál, sem vogar sér að kæra nauðgun, sett til sýnis á opinberum vettvangi strax eftir að glæpurinn er kærður. �?ökk sé ,,umræðunni” fær misþyrmda manneskjan ekkert svigrúm til að komast heim í öruggt skjól, heldur verður hún að þola opinbera umræðunauðgun í lóðbeinu framhaldi af líkamlegri nauðgun.
�?jóðhátíðarlúkasinn verður til í andrúmslofti netvæddrar múgsefjunar. Er ekki mál að linni?,�?? segir Páll.

Nýjustu fréttir

Elís Þór æfði með A-landsliðinu
Treysti sér ekki til að vera heima og horfa á leikinn
Gagnrýna samning bæjarins við rekstraraðila heilsuræktar
Lönduðu fullfermi í Grindavík
Líf og fjör á Suðurlandi: Barnamenningardagar framundan
Tanja er íþróttamaður mánaðarins
Tannverndarvika
Gyllta flóran frá Féló vann Stíl 2026
Eyjafréttir
Friðhelgisyfirlýsing

Þessi vefsíða notar fótspor til að við getum veitt þér bestu notendaupplifun. Upplýsingar um fótspor eru geymdar í vafranum þínum og framkvæma aðgerðir eins og að þekkja þig þegar þú kemur aftur á vefsíðu okkar og hjálpa teymi okkar að skilja hvaða hluta vefsíðunnar þér finnst áhugaverðast og gagnlegast.