Margbreytilegt listalíf í hálfa öld
Sigurgeir Jónasson ljósmyndari verður með sýningu á yfir 200 rúllandi ljósmyndum á stóru tjaldi í Viskusalnum á jarðhæð Strandvegs 50 mánudaginn 28. mars nk. – öðrum í Páskum kl. 15.00. Kári Bjarnason og Arnar Sigurmundsson munu verða Sigurgeir til aðstoðar eins og síðast og gestir munu einnig leggja orð í belg. Að þessu sinni verður farið yfir liðlega 200 ljósmyndir á stóru sýningartjaldi og tengjast þær listalífinu í Eyjum í hálfa öld, fyrir og eftir gos.
Einstaklingar í myndlist, tónlist, kvikmyndum og menningu koma þar við sögu. Í kaffiihléi mun þeir félagar Árni Johnsen og Sigurmundur Gísli Einarsson, Simmi taka nokkur Eyjalög. Að því loknu verður sýndur 12 mínúta bútur úr kvikmynd Páls Steingrímssonar og Ernst Kettlers, sem ekki var lokið við, en sögusviðið er Vestmannaeyjar fyrr á öldum á tíma áraskipanna.
Reiknað er með að myndasýningin taki 60 mínútur og kaffið, tónlistin og kvikmyndandabúturinn samtals um 30 mínútur og öllu verði lokið um kl. 16.30. Á fyrstu myndasýningunni á þessu ári voru gestir liðlega 80 talsins fullur salur en nú hefur verið bætt við nýjum stólum til að það fari sem best um gesti.

Nýjustu fréttir

ÍBV tapaði gegn Fram á Lambhagavellinum
Ólíklegt að höfnin opni um helgina
Stærstu viðskiptafréttir í Eyjum á næsta leiti?
Svava Tara hjá Sölku fer yfir sumartískuna 2026
Eyjan okkar
Brjóstaskimun í Eyjum
Tvö fyrirtæki frá FÍV komin í úrslit fyrirtækjasmiðju
Ómálefnaleg veiðiráðgjöf á hvölum
Eyjafréttir
Friðhelgisyfirlýsing

Þessi vefsíða notar fótspor til að við getum veitt þér bestu notendaupplifun. Upplýsingar um fótspor eru geymdar í vafranum þínum og framkvæma aðgerðir eins og að þekkja þig þegar þú kemur aftur á vefsíðu okkar og hjálpa teymi okkar að skilja hvaða hluta vefsíðunnar þér finnst áhugaverðast og gagnlegast.