Meistaraflokkur karla | Bjarni Jóh með hrekk
�?á er komið að öðrum pistli Inga Sigurðssonar úr ferð meistaraflokks karla í sólinni á Spáni. Einnig fylgja nokkrar myndir með fréttinni sem birtust á stuðningsmannaspjalli ÍBV í gær.
Bjarni Jóh var búinn að boða morgunmat frá kl. 07.00-08.30 og því miður fyrir þá sem ætluðu að vera tímanlega þá byrjar morgunmatur ekki fyrr en kl. 08.00. Bjarni með smá hrekk í upphafi ferðar, enda var hann að lesa bók Ása Friðriks um Hrekkjalómafélagið í vélunum í gær.
Fyrri æfing dagsins var kl. 10.00 og mikilvægt að ná ferðaþreytu úr mönnum og einnig að ná stífleika úr þeim sem voru að leika á mánudag. �?að er nefnilega ekkert sérstakt að fara í mikið flugferðalag daginn eftir strembinn leik. �?fing morgunsins var góð og létt yfir mannskapnum. Pablo öflugur í að halda mönnum við efnið með sektirnar og engin undankomuleið hjá leikmönnum með það.
Í kjölfar æfingar var hádegisverður og svo gátu menn aðeins nýtt sólargeislana fram að næstu æfingu. Veðrið mjög gott í dag og sólin lét vel á sér kræla. Erfiðar aðstæður fyrir þunnhærða menn eins og Kidda markmannsþjálfara, en hann er alvanur og með varnirnar allar á hreinu.
Seinni æfingin var með töluvert meiri ákefð og aðallega farið í gegnum uppspil og hreyfingar leikmanna. Góður stígandi í æfingum dagsins og einnig haft í huga að á morgun er leikur gegn Spanjólum. �?ví hvíldu nokkrir á seinni æfingunni sem voru enn stífir til að vera tilbúnir í slaginn á morgun.
Á morgun er leikur gegn spænsku liði sem ég veit ekki nafnið á enn sem komið er. Hanni harði sá um ýmis skemmtiatriði fyrir leikmenn í dag sem ekki verða tíunduð frekar.
Með ÍBV-kveðju, Ingi Sig

Nýjustu fréttir

ÍBV tapaði gegn Fram á Lambhagavellinum
Ólíklegt að höfnin opni um helgina
Stærstu viðskiptafréttir í Eyjum á næsta leiti?
Svava Tara hjá Sölku fer yfir sumartískuna 2026
Eyjan okkar
Brjóstaskimun í Eyjum
Tvö fyrirtæki frá FÍV komin í úrslit fyrirtækjasmiðju
Ómálefnaleg veiðiráðgjöf á hvölum
Eyjafréttir
Friðhelgisyfirlýsing

Þessi vefsíða notar fótspor til að við getum veitt þér bestu notendaupplifun. Upplýsingar um fótspor eru geymdar í vafranum þínum og framkvæma aðgerðir eins og að þekkja þig þegar þú kemur aftur á vefsíðu okkar og hjálpa teymi okkar að skilja hvaða hluta vefsíðunnar þér finnst áhugaverðast og gagnlegast.