�?fingaferð mfl. karla ÍBV – Dagur 3.
Dagurinn var aðallega með áherslu á leik dagsins gegn Orihuela, sem er spænskt atvinnumannalið í 3. efstu deild á Spáni.
Fyrir leikinn þá var æfing hjá þeim sem ekki tóku þátt í leiknum og þar var vel tekið á því. Alli stjórnaði æfingunni og má geta þess að gamli maðurinn á æfingunni, Matt Garner, var í þvílíku formi og skoraði hvert markið af öðru með glæsilegum skotum. �?að er virkilega ánægjulegt fyrir okkur öll að vita til þess að Matt sé á góðri leið og spennandi að sjá hvenær við fáum hann á fullu inn með liðinu. smile emoticon
Einnig var Sir. Hilmisson í essinu sínu í lok æfingar þegar hann vann skotkeppni leikmanna, ótrúlegt en satt. Trúið mér, þvílík tilþrif hjá Erninum, tilþrif sem Wenger þarf sannarlega á að halda fyrir Arsenal. wink emoticon
Leikur dagsins var svo í hádeginu gegn Orihuela og var þar um hörkuleik að ræða sem lauk með sigri Spanjólana 2-1. Leikurinn var mjög jafn og kom fyrsta mark leiksins þegar 20 mínútur lifðu leiks. �?á skoruðu Orihuela 1-0 með marki úr hornspyrnu eftir mikil mistök í teig ÍBV. Mark af ódýrari gerðinni. Leikmenn ÍBV komu sterkir til baka og Mikkel jafnaði leikinn með virkilega góðu marki eftir góðan undirbúning Elvars Inga. Hins vegar yrðu önnur ódýr mistök hjá ÍBV þess valdandi að Orihuela skoraði sigurmark leiksins á lokamínútunum. Derby markvörður, misreiknaði þásendingu inn fyrir vörnina og var vippað auðveldlega yfir hann. �?sigur því staðreynd í annars jöfnum leik.
�?að var ýmislegt í leik liðsins sem var ábótavant og vantaði að ná að halda boltanum betur innan liðsins. Hins vegar voru ljósir punktar í leiknum eins og frammistaða fyrirliðans Avni Pepa sem átti enn eina flotta frammistöðu. Derby lék einnig vel og hans einu mistök voru í sigurmarki leiksins. Mees lék síðustu 20 mínútur leiksins eftir að hafa verið að jafna sig eftir liðþófaaðgerð. �?að eru ánægjuleg tíðindi að hann sé á góðri leið með að komast í leikform. Mikkel komst einnig aftur á skotskóna og hann kann sannarlega að klára færin.
�?að var svo frí frá æfingum það sem eftir var dagsins og nýttu leikmenn það vel til að hvílast og hlaða batteríin.
Annars eru aðstæður hér frábærar og ekki skemmir veðrið fyrir.
Deginum var svo lokað með áhorfi á leik Man United og Liverpool í flottum hópi Íra sem fögnuðu degi heilags Patreks. Mikið fjör þar á bæ.
Annars góðar kveðjur heim frá hópnum og frekari fréttir á morgun.
kv., Ingi Sig.