„Mest af ýsu en annars algjör kokteill”
sjomadur_bergey_opf_22
Myndin er tekin um borð í Bergey VE. Eyjafréttir/Eyjar.net: ÓPF

Vestmannaey VE og Bergur VE lönduðu bæði fullfermi í gær. Vestmannaey landaði í heimahöfn en Bergur landaði í Neskaupstað. Rætt var við skipstjóranna á fréttavef Síldarvinnslunnar í gær.

Egill Guðni Guðnason, skipstjóri á Vestmannaey, sagði að aflinn hefði verið afar blandaður. „Þetta var mjög blandaður afli að þessu sinni. Mest af ýsu en annars algjör kokteill. Töluvert af þorski og síðan ufsi, karfi, lýsa, langa, blálanga, steinbítur, skötuselur, keila og öfugkjafta. Þetta var drjúgur hluti fiskabókarinnar. Veitt var á Pétursey og Vík og síðan í Skaftárdýpi, Reynisdýpi, Skeiðarárdýpi og Meðallandsbugt. Túrinn tók fjóran og hálfan dag og veður gat verið verra. Það voru tveir dagar í kaldaskít en annars var þokkalegasta veður,” sagði Egill Guðni.

Jón Valgeirsson, skipstjóri á Bergi, sagði að veiðiferðin hefði gengið vel. „Við fórum frá Eyjum á fimmtudagskvöld og byrjuðum á Víkinni. Þar var heldur rólegt. Síðan var keyrt austur eftir og tekið eitt hol í Lónsbugtinni. Þá var reynt við ýsu á Glettinganesflaki og síðan var ágæt ýsuveiði á Gerpisflakinu. Loks var haldið á Gula teppið og klárað þar. Aflinn í túrnum var mest ýsa en ágætt af þorski með. Það er alls ekki hægt að kvarta undan veðri að þessu sinni. Það var fínasta veður allan tímann; norðan kaldi,” sagði Jón.

Bergur hélt á ný til veiða í gær en veðurútlit er ekki sérlega gott, segir í fréttnni.

Nýjustu fréttir

Róbert hjá ÍBV næstu tvö árin
Framkvæmdir langt komnar í Íþróttamiðstöðinni
Skákþing Vestmannaeyja: Úrslitin ráðast í síðustu umferðunum
Yfir 90% íbúa ánægðir
Bríet kemur fram á Hljómey
Sæunn Magnúsdóttir gengur til liðs við Miðflokkinn
Framkvæmdir hafnar við Áshamar 77  
Dýptarmælingar fyrirhugaðar í Landeyjahöfn
Eyjafréttir
Friðhelgisyfirlýsing

Þessi vefsíða notar fótspor til að við getum veitt þér bestu notendaupplifun. Upplýsingar um fótspor eru geymdar í vafranum þínum og framkvæma aðgerðir eins og að þekkja þig þegar þú kemur aftur á vefsíðu okkar og hjálpa teymi okkar að skilja hvaða hluta vefsíðunnar þér finnst áhugaverðast og gagnlegast.