Met í aprílmánuði hjá Berg-Huginn
Aflinn í aprílmánuði hjá skipum Bergs �?? Hugins, Vestmannaey VE og Bergey VE, sló fyrri met. Alls var hann 1280 tonn upp úr sjó og námu verðmæti aflans um 275 milljónum króna. Fullyrt er að þetta sé besti mánuður í sögu fyrirtækisins og almennt eru menn sammála um að vart sé unnt að gera betur.
Vestmannaey var tekin í slipp hjá Skipalyftunni á þriðjudag í síðustu viku og hafa framkvæmdir við skipið gengið einstaklega vel. �?að hefur verið málað hátt og lágt, öxuldregið, skipt um skrúfublöð og sett tvö ný botnstykki ásamt annarri slippvinnu. Skipið verður væntanlega sjósett í dag og mun halda til veiða í nótt eða í fyrramálið.
Á meðan Vestmannaey hefur verið í slippnum hefur Bergey rótfiskað. Skipið er að landa fullfermi (70 tonnum) af ufsa í dag eftir tveggja daga veiðiferð og landaði áður fullfermi af ýsu einnig eftir tveggja daga veiðiferð.
Síldarvinnslan hf. greinir frá þessu af facebooksíðu sinni.

Nýjustu fréttir

Bæjarstjórn gagnrýnir boðaðan niðurskurð til Herjólfs
ÍBV vann öruggan sigur á Stjörnunni – Sandra fór á kostum
Heimir Hallgrímsson heldur varnarnámskeið í Eyjum í desember
Vestmannaeyjabær leggur sex milljónir í hlutafjáraukningu í Eyjagöngum
Skálað og skrafað í Miðstöðinni – myndir
Eyjakonur vilja halda í við topplið Hauka
Glæsileg söngveisla þriggja kóra í Eyjum
Þoka hér en ekki þar
Eyjafréttir
Friðhelgisyfirlýsing

Þessi vefsíða notar fótspor til að við getum veitt þér bestu notendaupplifun. Upplýsingar um fótspor eru geymdar í vafranum þínum og framkvæma aðgerðir eins og að þekkja þig þegar þú kemur aftur á vefsíðu okkar og hjálpa teymi okkar að skilja hvaða hluta vefsíðunnar þér finnst áhugaverðast og gagnlegast.