Rekstrarframlag ríkisins og mótframlag Vestmannaeyjabæjar duga ekki fyrir rekstri Náttúrustofu Suðurlands. Bæjarráð Vestmannaeyja hefur af þessu miklar áhyggjur og hefur skipað þriggja manna stýrihóp sem á að skila tillögum að framtíðarfyrirkomulagi stofunnar á næsta fundi ráðsins.