Stórvirkar vinnuvélar hafa nú verið fluttar í Landeyjahöfn, en ætlunin er að moka sandi upp úr höfninni. Áætlað er að framkvæmdin hefjist í dag og standi yfir í um tíu daga. Fyrirtækið Suðurverk sér um verkið. �??Við erum komin þarna með fimm tæki, gröfur, trukka og ýtu. �?að stendur til að ná innan úr höfninni sandi, foksandi sem hefur borist inn í hana. Við náum vissum hluta en auðvitað ekki öllu,�?? segir Dofri Eysteinsson, framkvæmdastjóri Suðurverks, en gröfurnar sem um ræðir hafa bómur sem ná lengra en á hefðbundnum gröfum.
Siglingar um Landeyjahöfn hófust fyrst í byrjun maí í fyrra en þeim lauk um miðjan september. Erfiðlega hefur gengið að dýpka Landeyjahöfn frá því að belgíska sanddæluskiptið Galileo 2000 var fengið til.