Efnistaka við Landeyjahöfn var til umfjöllunar á fundi bæjarráðs Vestmannaeyja í síðustu viku.
Þar var farið yfir umsögn Vestmannaeyjabæjar til Skipulagsstofnunar varðandi áform Heidelberg Cement Pozzolanic Materials ehf. um efnistöku í og við Landeyjahöfn. Umsögnin hefur verið send og framkvæmdastjóri stjórnsýslu- og fjármálasviðs mun ítreka beiðni um fund með Skipulagsstofnun til að fylgja umsögninni eftir.
„Líflínur“ samfélagsins í Eyjum
Í umsögninni segir m.a. að á svæðinu sem um ræði sé að finna „líflínur“ samfélagsins í Vestmannaeyjum; neysluvatn, rafmagn og samgönguhöfn heimamanna. Skemmdir á þeim hefðu verulegar og kostnaðarsamar afleiðingar í för með sér.
„Vestmannaeyjabær telur að hagsmunir samfélagsins og hagsmunir sjávarútvegs Íslands, sem óvissa og áhætta ríkir um vegna ófyrirséðra og óafturkræfra áhrifa fyrirhugaðrar framkvæmdar, hljóti að vega þyngra en ósk fyrirtækis um námugröft á einu mikilvægasta hryggningarsvæði Íslandsmiða,“ segir meðal annars í umsögn bæjaryfirvalda.
Þar segir að umrætt framkvæmdasvæði sé afmarkað við netlögn sem sé 115 metrar frá stórstraumsfjöruborði og dýpi áætlað um 2,5 metrar og út á 40 metra dýpi. Það sé samtals um 96 ferkílómetrar að stærð og fyrirhugað sé að vinna allt að 80 milljónir rúmmetra ef efni á svæðinu á 30 árum, eða 2,67 milljón rúmmetra á ári.
Eðlilegt að leita umsagnar mun breiðari hóps hagaðila
Þá gerir Vestmannaeyjabær athugasemd við ófyrirsjáanlegar afleiðingar efnistökunnar og vísar til umsagna annarra aðila á borð við Vegagerðina, HS-Veitur, Landsnet og Hafrannsóknarstofnun. Segir meðal annars að efnisnám í nálægð við innviði gæti haft áhrif á set og þá sé svæðið innan mikilvægs hryggningarsvæðis margra fiskistofna, þar með talið loðnu og þorsks.
„Áhrif efnistöku með dælingu á egg, lirfur og seiði margra fisktegunda eru að miklu leyti óþekkt. Að auki er um að ræða mikilvægt uppeldissvæði fyrir fjölmargar fisktegundir og er svæðið því verðmætt fyrir sjávarútveg á Íslandi,“ segir meðal annars í umsögninni.
Það er niðurstaða bæjaryfirvalda að óvissa, áhætta og óafturkræfi framkvæmdanna sé slík að ekki sé ásættanlegt að veita heimild fyrir þeim eins og þær eru lagðar upp. Þá hefði verið eðlilegt að leita umsagnar mun breiðari hóps hagaðila, meðal annars aðila í sjávarútvegi.
Um slíka gríðarlega mikilvæga innviði er að ræða sem séu forsenda byggðar í Eyjum
„Ekki eru ljós áhrif fyrirhugaðar efnisvinnslunnar á Landeyjarhöfn og sandflutninga í kringum hana eða áhrifin á öryggi innviða eins og vatnsleiðslur, rafstrengi, fjarskiptastrengi sem allir liggja í sjó og hluta til grafnir í sand. Einnig geti fyrirhuguð framkvæmd ógnað mikilvægum nytjastofnum. Vestmannaeyjabær ítrekar að sveitarfélagið getur aldrei veitt jákvæða umsögn á meðan ekki er hægt að tryggja að efnisvinnslan hafi engin áhrif á nytjastofna eða ógni lífæðum samfélagsins þegar um slíka gríðarlega mikilvæga innviði er að ræða sem eru forsenda byggðar í Vestmannaeyjum,“
segir að lokum í umsögninni. Í afgreiðslu bæjarráðs er ítrekað mikilvægi þess að gæta að hagsmunum íbúa í Vestmannaeyjum í málinu eins og fram kemur í umsögninni.
Skráðu þig á fáðu nýjustu tilkynningar fyrst