Nóg af leikjum um helgina | Toppliðin mætast í 3. flokki
�?að er nóg af leikjum um helgina hjá ÍBV, bæði í handbolta og fótbolta. �?að sem ber hæst er leikur ÍBV og Hauka í 3. flokki karla en þar mætast topplið 1. deildar ÍBV 1 og Haukar 1 og einnig topplið 3. deildar ÍBV 2 og Haukar 2.
Í 1. deildinni eru ÍBV og Haukar búin að vinna alla leiki sína nema einn. ÍBV tapaði fyrir FH í síðustu umferð og Haukar gerðu jafntefli við FH fyrr á tímabilinu. Eins og er situr ÍBV þó í 3. sæti deildarinnar en vinni þeir leikina sem þeir eiga inni fara þeir upp fyrir FH-inga sem sitja í 2. sætinu. Leikurinn annað kvöld gæti skorið úr um það hvort liðið verður deildarmeistari. Í 3. deildinni er svipað uppi á teningnum Haukar 2 hafa spilað ellefu leiki og ÍBV 2 tíu leiki, liðin hafa bæði unnið alla sína leiki. ÍBV er þó með tæpum 50 mörkum betri markatölu.
Leikirnir fara fram annað kvöld, sá fyrri, milli ÍBV 1 og Hauka 1 fer fram klukkan 20:45 og sá síðari fer fram klukkan 22:00.
Valskonur sækja ÍBV heim á sunnudaginn í Olís-deild kvenna en leikurinn fer fram klukkan 14:00.
�?á fara einnig fram fjórir fótboltaleikir um helgina þar sem ÍBV kemur við sögu.
Hæst ber þar að nefna styrktarleik fyrir Abel Dhaira sem fer fram á sunnudaginn klukkan 12:30 í Kórnum í Kópavogi. �?ar mætir Eyjalið Pepsiliði og hafa leikmannahóparnir nýlega verið gefnir út. Til þess að skoða leikmannahópa liðanna er hægt að smella hér.
�?á heimsækir ÍBV Stjörnuna í Lengjubikar karla á morgun um hádegisbilið.
ÍBV spilar við Aftureldingu klukkan 14:00 á laugardaginn en leikurinn fer fram á N1-vellinum að Varmá.
�?á spilar 3. flokkur karla hjá ÍBV við Njarðvík í Reykjaneshöllinni klukkan 14:00 á sunnudaginn.
Hér fyrir neðan má sjá alla handboltaleiki helgarinnar.

Föstudaginn 4. mars
Kl. 20:45 Haukar – ÍBV
3. flokkur karla
Kl. 22:00 Haukar 2 – ÍBV 2
3. flokkur karla

Laugardaginn 5. mars
Kl. 15:00 ÍBV – KA
3. flokkur karla
Kl. 17:00 ÍBV 2 – �?ór Ak. 2
3. flokkur karla
Kl. 13:45 Selfoss – ÍBV
4. flokkur karla
Kl. 18:00 HK – ÍBV
4. flokkur karla
Kl. 19:00 HK 2 – ÍBV 2
4. flokkur karla
Kl. 13:00 ÍR – ÍBV
4. flokkur kvenna – yngri
Kl. 18:15 ÍBV – KA/�?ór
4. flokkur kvenna – yngri

Sunnudaginn 6. mars

Kl. 13:30 ÍBV – Valur
Olís-deild kvenna
Kl. 11:00 KA – ÍBV
3. flokkur karla
Kl. 13:00 �?ór Ak. 2 – ÍBV 2
3. flokkur karla
Kl. 15:00 Fram – ÍBV
4. flokkur karla
Kl. 10:30 Afturelding 2 – ÍBV 2
4. flokkur karla
Kl. 9:15 KA/�?ór – ÍBV
4. flokkur kvenna – yngri

Nýjustu fréttir

Hinkrum við, vöndum okkur betur
ÍBV mætir Tindastól í 16-liða úrslitum Mjólkurbikarsins
Er Herjólfsferð örugg ferð?
Eyjarnar fiskað afar vel að undanförnu
Samgöngur til Vestmannaeyja algerlega óásættanlegar
Skyldumæting í höllina í dag!
Undirskriftalisti vegna ástandsins í Landeyjahöfn
ÍBV tapaði gegn Fram á Lambhagavellinum
Eyjafréttir
Friðhelgisyfirlýsing

Þessi vefsíða notar fótspor til að við getum veitt þér bestu notendaupplifun. Upplýsingar um fótspor eru geymdar í vafranum þínum og framkvæma aðgerðir eins og að þekkja þig þegar þú kemur aftur á vefsíðu okkar og hjálpa teymi okkar að skilja hvaða hluta vefsíðunnar þér finnst áhugaverðast og gagnlegast.