Ný ferja mun bæði auka öryggi í siglingum og fjölga siglingadögum
Fjárlaganefnd Alþingis fékk til sín á mánudaginn ýmsa þá er komið hafa að gerð Landeyjahafnar. �?á sem viðrað hafa skoðanir sínar á framkvæmdinni, skipstjóra á Herjólfi og sanddæluskipum sem þekkja aðstæður öðrum betur, fulltrúa úr smíðanefnd og forsvarsmenn Vegagerðarinnar og bæjarstjórnar. Fyrir liggur að hönnun á nýrri ferju er lokið og á að bjóða hana út á næstunni. Ekki er þó gert ráð fyrir henni í fjárlögum þessa árs þannig að leita verður samþykkis Alþingis ef til kemur.
Átök eru um hvað gera skuli en flestir eru á að gera verði breytingar á Landeyjahöfn. �?ar skiptast menn í fylkingar, annars vegar eru þeir sem vilja að höfnin verði lagfærð áður en nýtt skip verður smíðað og hinsvegar þeir sem vilja nýtt skip og smíðatíminn nýttur til að vinna að lagfæringum á höfninni. Eitt eru þó allir sem láta sig málið varða sammála um, að núverandi staða sé óþolandi og tryggja verði siglingar í Landeyjahöfn jafnt sumar sem vetur.
�??�?að er rétt að í gær morgun voru fulltrúar Vestmannaeyjabæjar boðaðir fyrir fjárlaganefnd til að ræða kostnaðinn við Landeyjahöfn og hugmyndir Vestmannaeyjabæjar um næstu skref,�?? sagði Elliði Vignisson, bæjarstjóri eftir fundinn. �??Með mér var Páll Marvin Jónsson formaður bæjarráðs. Að okkar ósk sátu fundinn einnig þeir Guðlaugur �?lafsson skipstjóri á Herjólfi og Gunnlaugur Grettisson rekstrarstjóri Herjólfs. Stefna bæjarstjórnar hvað næstu skref varðar er alveg kýrskýr, við viljum að tafarlaust verði ráðist í smíði nýrrar Vestmannaeyjaferju og smíðatími hennar nýttur til að gera endurbætur á höfninni. �?g hygg að það sé eins með okkur og allra aðra, ekkert okkar á von á því að ný ferja reddi öllu.
Auðvitað þarf áfram að gera breytingar áhöfninni þegar þær verða mögulegar. �?að er líka alveg ljóst að við eigum öll von á því að frátafir verði langt umfram það sem í fyrstu var talið gerlegt. Ef til vill 40 til 70 dagar, ef til vill meira og ef til vill minna. �?að breytir því ekki að sá skipstjóri Herjólfs sem mesta reynsluna hefur og sá eini þeirra sem siglt hefur nýja skipinu í siglingahermi telur að ný ferja komi bæði til með að auka öryggi í siglingum og fjölga siglingadögum og það tvennt hlýtur að fela það í sér að við berjumst fyrir nýju skipi svo fljótt sem verða má.�??
Elliði sagði að viðræðum þeirra við fjárlaganefnd, og ekki síst skipstjóra Herjólfs hafi komið glögglega fram að auðvitað náist ekki viðunandi árangur fyrr en búið verður að gera breytingar á höfninni og þá sérstaklega hvað varðar að skýla skipinu fyrir haföldunni. �??Ef slík lausn væri á borðinu núna þá myndum við auðvitað krefjast þess að framkvæmdir myndu hefjast um strax, rétt eins og smíðin. Að deila um hvort það þurfi að smíða nýtt skip eða breyta höfninni er ekki rétt nálgun og í raun slæmt þegar slík víglína er dregin. �?að sem til þarf er hvorutveggja. Nýtt skip er þannig nauðsynleg en ekki nægjanleg forsenda þess að bæta ástandið í þessum siglingum,�?? sagði Elliði.

Nýjustu fréttir

ÍBV mætir Tindastól í 16-liða úrslitum Mjólkurbikarsins
Er Herjólfsferð örugg ferð?
Eyjarnar fiskað afar vel að undanförnu
Samgöngur til Vestmannaeyja algerlega óásættanlegar
Skyldumæting í höllina í dag!
Undirskriftalisti vegna ástandsins í Landeyjahöfn
ÍBV tapaði gegn Fram á Lambhagavellinum
Ólíklegt að höfnin opni um helgina
Eyjafréttir
Friðhelgisyfirlýsing

Þessi vefsíða notar fótspor til að við getum veitt þér bestu notendaupplifun. Upplýsingar um fótspor eru geymdar í vafranum þínum og framkvæma aðgerðir eins og að þekkja þig þegar þú kemur aftur á vefsíðu okkar og hjálpa teymi okkar að skilja hvaða hluta vefsíðunnar þér finnst áhugaverðast og gagnlegast.