�?ann 4 apríl sl. tóku þau Mary F. Sicat og Guðjón �?rn Sigtryggsson við rekstrinum á versluninni Active.is. Karen Inga �?lafsdóttir stofnaði verslunina árið 2013 sem hefur hingað til boðið upp á ýmsar heilsuvörur eins og vítamin/bætiefni, meiðslavörur, hár- og húðvörur frá Dauðahafinu ásamt infra rauðu sánaklefunum. Vegna aukinna umsvifa heildsölu Karenar að þá hefur hún og nýir rekstraraðilar gert með sér samkomulag um að þau muni reka verslunina allaveganna næstu 12 mánuði. Áfram verður boðið upp á þær vörur sem hafa verið til í versluninni en einnig verður vöruúrvalið aukið hægt og bítandi. ,,Til að byrja með munum við taka inn aukahluti fyrir ræktina eins og handlóð og ketilbjöllur.” segir Mary.
,,�?að eru spennandi tímar framundan og við töldum það töluvert betri kost að koma rekstrinum á versluninni í góðar hendur heldur en að loka henni vegna anna” sagði Karen að lokum.