Nýr framherji að láni til ÍBV frá Derby County
Knattspyrnuráð ÍBV hefur fengið til liðs við sig enska leikmanninn Charles Vernam. Hann er 20 ára framherji/framliggjandi miðjumaður og kemur á lánssamningi frá Championship félaginu Derby County.
Charles hefur verið á mála hjá Derby County frá árinu 2012 og hefur að undanförnu leikið með 21. árs liði félagsins sem er í harðri toppbaráttu í efstu deild þar, U21 Premier League.
Charles mun leika með ÍBV næstu 2-3 mánuði og mun fá leikheimild á næstu dögum.
Við vonumst einnig til að stuðningsmenn ÍBV, nær og fjær, taki vel á móti leikmanninum og hann muni upplifa sanna Eyjastemmingu á leikjum ÍBV.
Knattspyrnuráð ÍBV býður Charles velkominn á Eyjuna fögru og væntir mikils af honum.
ÁFRAM ÍBV, alltaf og alls staðar.

Nýjustu fréttir

Bæjarstjórn gagnrýnir boðaðan niðurskurð til Herjólfs
ÍBV vann öruggan sigur á Stjörnunni – Sandra fór á kostum
Heimir Hallgrímsson heldur varnarnámskeið í Eyjum í desember
Vestmannaeyjabær leggur sex milljónir í hlutafjáraukningu í Eyjagöngum
Skálað og skrafað í Miðstöðinni – myndir
Eyjakonur vilja halda í við topplið Hauka
Glæsileg söngveisla þriggja kóra í Eyjum
Þoka hér en ekki þar
Eyjafréttir
Friðhelgisyfirlýsing

Þessi vefsíða notar fótspor til að við getum veitt þér bestu notendaupplifun. Upplýsingar um fótspor eru geymdar í vafranum þínum og framkvæma aðgerðir eins og að þekkja þig þegar þú kemur aftur á vefsíðu okkar og hjálpa teymi okkar að skilja hvaða hluta vefsíðunnar þér finnst áhugaverðast og gagnlegast.