�?ll lið 3. flokks ÍBV urðu deildarmeistarar um helgina
Hjá ÍBV urðu þrjú lið deildarmeistarar um helgina, ÍBV eignaðist þá deildarmeistara í 1. deild, 2. deild og 3. deild. �?að er í raun ótrúlegt afrek að öll lið 3. flokks hjá ÍBV hafi orðið deildarmeistarar á sama tímabilinu.
Lið 1 í 3. flokki karla spilaði í 1. deild á tímabilinu og vann hana með glæsibrag. Liðið sigraði 14 af 16 leikjum sínum í deildinni og tapaði einungis tveimur, einum heimaleik gegn FH og einum útileik gegn Val. �?að sem er líka sérstakt er að liðið sigraði báða leikina gegn Haukum, sem urðu í öðru sæti deildarinnar. Titillinn var innsiglaður um helgina með sigri gegn Haukum, þar sem jafntefli hefði dugað til að vinna deildina.
Leikurinn var einn sá flottasti sem liðið spilaði á leiktíðinni og var vörnin ótrúlega góð. Leiknum lauk 26-19 og var í raun aldrei spurning um niðurstöðuna.
Lið 2 í 3. flokki lék í 3. deild en liðið er einungis skipað leikmönnum á yngra ári flokksins. �?eir spiluðu einnig frábærlega á tímabilinu og sigruðu Hauka í hreinum úrslitaleik um helgina. Liðið vann 14 og gerði eitt jafntefli í þeim fimmtán leikjum sem búnir eru, einum leik er ólokið, gegn Aftureldingu 2. ÍBV var eina liðið til að sigra Hauka í 3. deildinni. Leiknum um helgina lauk með 30-20 sigri ÍBV.
ÍBV sendi til leiks lið í 2. deild í 3. flokki kvenna sem er mjög skrýtið þar sem árið áður varð ÍBV deildarmeistari í 1. deild í 3. flokki kvenna. Liðið sigraði 2. deildina án teljandi vandræða þar sem Afturelding, ÍR og Selfoss voru skilin eftir auk varaliða félaga í efstu deild. ÍBV hefur lokið sextán af átján leikjum sínum, unnið fjórtán gert eitt jafntefli og tapað einum leik.
Við á Eyjafréttum óskum liðunum innilega til hamingju með árangurinn.

Nýjustu fréttir

Ólíklegt að höfnin opni um helgina
Stærstu viðskiptafréttir í Eyjum á næsta leiti?
Svava Tara hjá Sölku fer yfir sumartískuna 2026
Eyjan okkar
Brjóstaskimun í Eyjum
Tvö fyrirtæki frá FÍV komin í úrslit fyrirtækjasmiðju
Ómálefnaleg veiðiráðgjöf á hvölum
Við þurfum að hætta þessum bútasaumi
Eyjafréttir
Friðhelgisyfirlýsing

Þessi vefsíða notar fótspor til að við getum veitt þér bestu notendaupplifun. Upplýsingar um fótspor eru geymdar í vafranum þínum og framkvæma aðgerðir eins og að þekkja þig þegar þú kemur aftur á vefsíðu okkar og hjálpa teymi okkar að skilja hvaða hluta vefsíðunnar þér finnst áhugaverðast og gagnlegast.