Opið á Háaloftinu eftir miðnætti föstudagskvöld og tónleikar á laugardagskvöld.
�?að verður mikið um að vera á Háaloftinu um helgina. Á föstudagskvöld, eftir miðnætti (aðfaranótt laugardagsins), ætlar enginn annar en Hjalti Páls eða DJ Henok að skemmta gestum Háaloftsins. Opið verður frá miðnætti og opið til kl. 04.00. Á laugardagskvöldið verður svo sannkölluð tónlistarveisla á Háaloftinu. �?á leiða saman hesta sína Tyrkja Guddu spilararnir Biggi Nielsen (trommur), Sigurgeir Sigmunds (gítar) og Ingi �?skars (bassi) og fá til liðs við sig einn af söngvurum SkonRokkshópsins, Bigga Haralds, eða Bigga Gildru. Saman ætla þeir að spila allt besta efnið frá Fogerty bræðrunum og aðalsprautum Creedence Clearwater Revival. �?etta verður algjörlega skothelt kvöld, enda kunna spilararnir þetta upp á tíu og það fyrirfinnst ekki betri söngvari í Evrópu fyrir þetta frábæra kántrý-skotna rokk en Biggi Gildra.
Til að kóróna kvöldið, eða öllu heldur til að opna kvöldið, fáum við svo alveg fádæma flott band, sem fólk ætti alls ekki að missa af, Berklee bandið, sem er frábært blúsband.
�?orleifur Gaukur sem hefur verið áberandi í íslensku senuni frá ungum aldri. Hann hefur spilað með KK, Kaleo, Victor Wooten, Bob Margolin, Vinum Dóra, Tómas R. Einarsson, og mörgum fleirum. Í haust hóf hann nám við Berklee College of Music á fullum skólastyrk og er strax farinn að vekja athygli þar. Með sér hefur hann topp spilara úr Berklee sem eru komnir til að spila á Blúshátíð Reykjavíkur og fleiri stöðum. Ekki missa af frábæru tækifæri að sjá toppklassa blúsband spila í Eyjum!
�?orleifur Gaukur Davíðsson – Munnharpa og söngur
Hunter Burgamy – Gítar
Colescott Rubin – Kontrabassi
Nick Sanchez �?? Trommur
�?etta er tónlistarviðburður sem enginn sannur tónlistaraðdáandi lætur fram hjá sér fara.

Nýjustu fréttir

ÍBV tapaði gegn Fram á Lambhagavellinum
Ólíklegt að höfnin opni um helgina
Stærstu viðskiptafréttir í Eyjum á næsta leiti?
Svava Tara hjá Sölku fer yfir sumartískuna 2026
Eyjan okkar
Brjóstaskimun í Eyjum
Tvö fyrirtæki frá FÍV komin í úrslit fyrirtækjasmiðju
Ómálefnaleg veiðiráðgjöf á hvölum
Eyjafréttir
Friðhelgisyfirlýsing

Þessi vefsíða notar fótspor til að við getum veitt þér bestu notendaupplifun. Upplýsingar um fótspor eru geymdar í vafranum þínum og framkvæma aðgerðir eins og að þekkja þig þegar þú kemur aftur á vefsíðu okkar og hjálpa teymi okkar að skilja hvaða hluta vefsíðunnar þér finnst áhugaverðast og gagnlegast.