Opið fyrir umsóknir í "Viltu hafa áhrif 2024"
Mikið hefur verið byggt í Vestmannaeyjum á síðustu árum og skortur á byggingalóðum.

Opið er fyrir ábendingar, tillögur og styrkumsóknir vegna fjárhagsáætlunargerðar Vestmannaeyjabæjar fyrir árið 2024 undir heitinu “Viltu hafa áhrif 2024?”

Nýbreytni

Ákveðið hefur verið að tvískipta úthlutun heildarstyrkfjárhæðarinnar fyrir næsta ár. Þannig geta umsækjendur ýmist sótt um styrk nú fyrir verkefni á fyrri hluta næsta árs, eða seinna þegar líður á árið 2024, í tengslum við síðari úthlutun. Auglýst verður sérstaklega eftir umsóknum í tengslum við síðari úthlutun.

Markmið

Markmiðið með styrkjunum er að stuðla að auknu íbúalýðræði í Vestmannaeyjum með því að gefa fólki, fyrirtækjum og félagasamtökum tækifæri á að hafa áhrif á nærsamfélagið með góðum verkefnum. Fjölmargar góðar umsóknir og ábendingar hafa borist í gegnum tíðina. Má þar m.a. nefna styrki til fjölda sýninga, menningartengda bókaútgáfu, leiktæki á opnum svæðum og göngustíga.

Ábendingar og tillögur

Áhugasamir einstaklingar og aðilar í Vestmannaeyjum sem vilja koma fram tillögum eða ábendingum varðandi fjárhagsáætlun 2024, eru hvattir til að koma þeim til skila í síðasta lagi 6. október 2023 á netfangið matthildur@vestmannaeyjar.is, eða með hefðbundnum pósti á póstfangið Vestmannaeyjabær við Bárustíg 15, 900 Vestmannaeyjum, b.t. Matthildar Halldórsdóttur.

Styrkir

Á sama hátt er áhugasömum einstaklingum og aðilum bent á að sækja um styrki eða framlög vegna verkefna fyrir árið 2024, að senda umsóknir til bæjaryfirvalda í síðasta lagi 6. október 2023 á sama netfang eða póstfang.

Í umsókninni þurfa að koma fram upplýsingar um nafn, heimilisfang, símanúmer og netfang umsækjenda, lýsing á verkefninu, áætluð upphæð og framkvæmdatími (þar sem við á). Ef sótt er um styrk til fjárfrekra verkefna þarf að koma fram sundurliðuð áætlun um einstaka kostnaðarliði.

Skilyrði er að umsókninni fylgi greinargerð sem skýrir verkefnið sem sótt er um styrk til sem og síðasta skattframtal eða ársreikningur.

Áskilinn er réttur til að krefjast frekari gagna, þyki þess þörf.

Nýjustu fréttir

Róbert hjá ÍBV næstu tvö árin
Framkvæmdir langt komnar í Íþróttamiðstöðinni
Skákþing Vestmannaeyja: Úrslitin ráðast í síðustu umferðunum
Yfir 90% íbúa ánægðir
Bríet kemur fram á Hljómey
Sæunn Magnúsdóttir gengur til liðs við Miðflokkinn
Framkvæmdir hafnar við Áshamar 77  
Dýptarmælingar fyrirhugaðar í Landeyjahöfn
Eyjafréttir
Friðhelgisyfirlýsing

Þessi vefsíða notar fótspor til að við getum veitt þér bestu notendaupplifun. Upplýsingar um fótspor eru geymdar í vafranum þínum og framkvæma aðgerðir eins og að þekkja þig þegar þú kemur aftur á vefsíðu okkar og hjálpa teymi okkar að skilja hvaða hluta vefsíðunnar þér finnst áhugaverðast og gagnlegast.