Ótækt að keyra þurfi fiskimjölsverksmiðjur á olíu
Fiskimjölsverksmiðja Ísfélagsins í forgrunni.

Rafmagnsrof yfir loðnuvertíð var til umræðu á fundi bæjarráðs í vikunni sem leið. Á dögunum barst tilkynning frá Landsvirkjun þar sem tilkynnt er að skerða þurfi framboð á rafmagni til ákveðinna fyrirtækja í vetur. Þetta þýðir að fiskimjölsverksmiðjur um allt land þurfi að keyra á olíu á komandi loðnuvertið.

Bæjarráð Vestmannaeyja sendi frá sér eftirfarandi bókun um málið. “Það er með öllu ótækt að upp sé komin sú staða að keyra þurfi fiskimjölsverksmiðjur á olíu í stað grænnar raforku vegna ónógrar raforkuframleiðslu og/eða lakrar flutningsgetu á rafmagni. Slíkt er í andstöðu við aðgerðaáætlun stjórnvalda í loftslagsmálum og orkustefnu sem stjórnvöld hafa boðað.

Þá er það alvarlegt mál ef sú staða kemur upp að ekki verði hægt að afhenda Herjólfi rafmagn til siglinga sem var mikið framfaraspor í loftslagsmálum.
Bæjarráð Vestmannaeyja skorar á stjórnvöld að finna lausn í málinu og tryggja afhendingu raforku um allt land.”

Nýjustu fréttir

Heimir heldur áfram með Írland – samningur til 2028
Vatn loksins farið að renna í laugina
Eyjalistinn tilbúinn – Miðflokkurinn kynnir sinn lista í kvöld
Norlandair með lægsta tilboð í flug til Eyja
„Hörkufiskirí”
Gular viðvaranir í öllum landshlutum
Trúin og andlegt starf styrkur í sorginni
Viðburðaríkir og skemmtilegir fjölgreindarleikar
Eyjafréttir
Friðhelgisyfirlýsing

Þessi vefsíða notar fótspor til að við getum veitt þér bestu notendaupplifun. Upplýsingar um fótspor eru geymdar í vafranum þínum og framkvæma aðgerðir eins og að þekkja þig þegar þú kemur aftur á vefsíðu okkar og hjálpa teymi okkar að skilja hvaða hluta vefsíðunnar þér finnst áhugaverðast og gagnlegast.