Prófkjör hjá Sjálfstæðisflokknum í Suðurkjördæmi í dag

Í dag laugardaginn 29. maí fer fram prófkjör hjá Sjálfstæðisflokknum í Suðurkjördæmi vegna komandi alþingiskosninga. Þar er það lagt í hendurnar á almennu flokksfólki í kjördæminu, að raða upp einstaklingum í efstu sætum á framboðslista flokksins.

Kosið er á 14 stöðum í kjördæminu í Vestmannaeyjum er kosið í Ásgarði og er opið frá 10:00 til 17:00.

Frambjóðendur

Ásmundur Friðriksson, alþingismaður, gefur kost á sér í 2. sæti.

Ég er 65 ára eiginmaður Sigríðar Magnúsdóttir. Við höfum verið gift í 43 ár og eigum við 5 börn og 5 barnabörn. Við erum samhent fjölskylda sem hefur tekist á við gleði og sorgir lífsins.Sjá nánar hér. 

Björgvin Jóhannesson, fjármálastjóri, gefur kost á sér í 3. sæti.

Björgvin er úr Mýrdalnum en býr á Selfossi ásamt eiginkonu sinni, Höllu Rós Arnarsdóttur, og þremur dætrum. Þau hjónin starfa bæði við Ferðaþjónustuna Efstadal II í Bláskógabyggð, en Björgvin var áður hótelstjóri Hótels Kötlu á Höfðabrekku í Mýrdal.

Sjá nánar hér. 

Eva Björk Harðardóttir, oddviti, gefur kost á sér í 2. – 3. sæti.Ég er gift Þorsteini M Kristinssyni, lögregluvarðstjóra á Kirkjubæjarklaustri.  Ég á 6 börn, bráðum 7 barnabörn og á heima í Efri-Vík. Þar rek ég Hótel Laka ásamt fjölskyldu minni, en á síðustu 16 árum hefur hótelið vaxið  úr lítilli ferðaþjónustu upp í 40 manna vinnustað þegar mest er.

Sjá nánar hér. 

Guðbergur Reynisson, framkvæmdastjóri, gefur kost á sér í 3. sæti.Guðbergur er fæddur 1971, giftur Arnbjörgu Elsu Hannesdóttur leikskólakennara. Þau eiga 4 börn, Róbert Andri 19 ára, Elva Sif 17 ára, Sunna Dís 10 ára og Birta María 6 ára. Framkvæmdastjóri fyrirtækisins Cargoflutningar ehf. síðan árið 2009. Guðbergur er formaður ÍRB-Íþróttabandalags Reykjanesbæjar og hefur komið víða við í íþrótta- og æskuliðsstarfi á svæðinu í gegnum árin

Sjá nánar hér. 

Guðrún Hafsteinsdóttir, markaðsstjóri, gefur kost á sér í 1. sæti.Guðrún Hafsteinsdóttir býður sig fram í 1. sæti í prófkjöri Sjálfstæðisflokksins í Suðurkjördæmi. Guðrún er fædd 9. febrúar 1970 og er dóttir hjónanna Laufeyjar Valdimarsdóttur og Hafsteins Kristinssonar. Guðrún er í sambúð með Hans Kristjáni Einarssyni Hagerup, gullsmið og eiga þau samtals sex börn.

Sjá nánar hér. 

Ingveldur Anna Sigurðardóttir, laganemi, gefur kost á sér í 4. – 5. sæti.Ég er ættuð undan Eyjafjöllum af bænum Varmahlíð þar sem fjölskylda mín býr. Árið 2016 útskrifaðist ég með stúdentspróf frá Fjölbrautaskóla Suðurlands og tók eitt ár í pásu og ferðaðist um heiminn. Svo lá leiðin í lagadeild Háskóla Íslands og stefni ég á að útskrifast þaðan með meistaragráðu lögfræði vorið 2022.

Sjá nánar hér. 

Jarl Sigurgeirsson, skólastjóri, gefur kost á sér í 4. sæti.
Jarl býr í Vestmannaeyjum og er í sambúð með Sigurveigu Steinarsdóttur. Börnin eru 5 á aldrinum 10-33 ára. Hann hefur starfað í flokksstarfinu í Vestmannaeyjum undanfarin ár. Hefur setið í stjórn fulltrúaráðs um nokkurra ára skeið og verið formaður frá árinu 2018. Ennfremur á hann sæti í miðstjórn flokksins. Hefur hann setið í nefndum og ráðum fyrir sjálfstæðisflokkinn í Vestmannaeyjum.

Sjá nánar hér. 

Margeir Vilhjálmsson, framkvæmdastjóri, gefur kost á sér í 4. sæti.Fæddur 2. febrúar 1972. Eiginkona er Herborg Arnarsdóttir, flugfreyja. Margeir á tvo syni, Viktor Thulin (f. 1995) og Dagur (f.2003). Stúdentspróf VÍ (1992), Golfvallarfræði frá Elmwood College í Skotlandi (1994), MBA frá HR (2008). Faggilding bifreiðasala (2017). Framkv.stjóri Bílaleigunnar Geysis (2009-). Margeir starfar einnig við golfkennslu og er annar eigenda Bílaútsölunnar í Reykjanesbæ.

Sjá nánar hér. 

Vilhjálmur Árnason, alþingismaður, gefur kost á sér í 1. sæti.Vilhjálmur er varaformaður þingflokks sjálfstæðismanna og situr í velferðarnefnd og umhverfis- og samgöngunefnd Alþingis. Hann hefur verið virkur í félags- og stjórnmálum frá unga aldri og gegnt margvíslegum störfum, s.s. í landbúnaði, löggæslu og ökukennslu. Vilhjálmur er kvæntur Sigurlaugu Pétursdóttur. Þau eiga þrjá syni og búa í Grindavík.

Sjá nánar hér. 

Nýjustu fréttir

Elmar áfram hjá Nordhorn-Lingen
Róbert hjá ÍBV næstu tvö árin
Framkvæmdir langt komnar í Íþróttamiðstöðinni
Skákþing Vestmannaeyja: Úrslitin ráðast í síðustu umferðunum
Yfir 90% íbúa ánægðir
Bríet kemur fram á Hljómey
Sæunn Magnúsdóttir gengur til liðs við Miðflokkinn
Framkvæmdir hafnar við Áshamar 77  
Eyjafréttir
Friðhelgisyfirlýsing

Þessi vefsíða notar fótspor til að við getum veitt þér bestu notendaupplifun. Upplýsingar um fótspor eru geymdar í vafranum þínum og framkvæma aðgerðir eins og að þekkja þig þegar þú kemur aftur á vefsíðu okkar og hjálpa teymi okkar að skilja hvaða hluta vefsíðunnar þér finnst áhugaverðast og gagnlegast.