�?orsteinn Gunnarsson hefur verið ráðinn sveitarstjóri Skútustaðahrepps en alls bárust 23 umsóknir um starfið. Mbl.is greindi frá.
Ráðningin var gerð í samstarfi við Capacent sem hafði umsjón með úrvinnslu umsókna, segir í frétt 640.is.
�?orsteinn hefur í tæp 9 ár starfað hjá Grindavíkurbæ, fyrst sem upplýsinga- og þróunarfulltrúi og svo sem sviðsstjóri frístunda- og menningarsviðs og hefur því víðtæka reynslu innan stjórnsýslunnar.
Hann starfaði um árabil í fjölmiðlum, m.a. á Stöð 2. Hann er með meistarapróf í verkefnisstjórnun (MPM) og diplóma og í opinberri stjórnsýslu og lærði fjölmiðlafræði í Svíþjóð á sínum tíma.
�?orsteinn hefur setið í fjölmörgum nefndum og ráðum, m.a. í stjórn Ferðamálasamtaka Reykjaness og Reykjanes Geopark. Eiginkona hans er Rósa Signý Baldursdóttir grunnskólakennari og eiga þau þrjú börn.