Reikna með að hrognataka hefjist fyrir helgi
Loðnuveiðar hófust í síðustu viku og hafa farið rólega af stað. �?ar ræður mestu lítill kvóti en hlutur Íslendinga þetta árið losar 100.000 tonn og mega Eyjaskipin veiða liðlega 30.000 tonn. Reynt er að stýra veiðunum þannig að sem mest verðmæti fáist úr þeim takmarkaða afla sem veiða má á vertíðinni. Byrjað verður á hrognatöku í vikunni.
Að sögn Eyþórs Harðarsonar, útgerðarstjóra Ísfélagsins, á félagið um 20.000 tonna loðnukvóta og hafa þeir núna veitt um 2500 tonn. ,,�?að er nánast allt unnið í frystingu sem við höfum veitt núna. Við erum að frysta þetta fyrir Asíumarkað og �?kraínu. Við stefnum svo á að veiða í hrognatöku á fimmtudag eða föstudag ef fram fer sem horfir.�??
Eyþór segir vertíðina leggjast ágætlega í Ísfélagsmenn þótt kvótinn sé lítill. �??Mestu máli skipti að vel takist í veiðum og vinnslu.�??
�??Staðan í loðnunni hjá okkur er þannig að við erum búnir að taka þrjá túra í frystingu,�?? sagði Sindri Viðarsson, sviðsstjóri á uppsjávarsviði Vinnslustöðvarinnar. �??Ísleifur kom í gærkvöldi og erum við að frysta úr honum núna. �?að verður síðasti túrinn í frystingu á þessari vertíð. Síðan erum við að reikna með að byrja í hrognum í lok vikunnar.�??
�?egar Eyjafréttir sló á þráðinn um borð í Sigurð VE, eitt af skipum Ísfélagsins, í gær var enga loðnu að sjá. �??Við erum búnir að vera keyra hérna fram og til baka síðan í gærkvöldi og það er enga loðnu að sjá, allavega ekki það sem af er degi. �?að hefur enginn kastað hérna á svæðinu, mér líst ekkert á blikuna,�?? sagði Hörður Már Guðmundsson, skipstjóri á Sigurði.

Nýjustu fréttir

Erfið staða í Land­eyja­höfn
Tvær flugferðir á dag á meðan beðið er opnunar Landeyjahafnar
Hinkrum við, vöndum okkur betur
ÍBV mætir Tindastól í 16-liða úrslitum Mjólkurbikarsins
Er Herjólfsferð örugg ferð?
Eyjarnar fiskað afar vel að undanförnu
Samgöngur til Vestmannaeyja algerlega óásættanlegar
Skyldumæting í höllina í dag!
Eyjafréttir
Friðhelgisyfirlýsing

Þessi vefsíða notar fótspor til að við getum veitt þér bestu notendaupplifun. Upplýsingar um fótspor eru geymdar í vafranum þínum og framkvæma aðgerðir eins og að þekkja þig þegar þú kemur aftur á vefsíðu okkar og hjálpa teymi okkar að skilja hvaða hluta vefsíðunnar þér finnst áhugaverðast og gagnlegast.