Rekstri Gullbergs VE verður hætt
Vinnslustöðin greinir frá því á vefsíðu sinni að á fundi með áhöfn Gullbergs VE-292 sem haldinn var s.l. laugardag, var áhöfninni tilkynnt um að rekstri skipsins yrði hætt seinni hluta þessa árs eða í upphafi næsta árs. Ástæða þess að rekstri skipsins verður hætt er sú að von er á nýju skipi, Breka VE-61, sem nú er í smíðum í Kína, í skipaflota Vinnslustöðvarinnar hf.
Gullberg er 37 metra togskip, smíðað í Noregi árið 2000. Breki VE verður mun öflugra togskip en þau sem nú eru í rekstri félagsins og er honum ætlað að koma í stað togskipanna Gullbergs og Jóns Vídalíns sem munu hverfa úr rekstri Vinnslustöðvarinnar. Í fyllingu tímans er gert ráð fyrir að tvær áhafnir muni skiptast á að sækja sjóinn á Breka og draga að landi afla beggja skipanna, þeirra Gullbergs og Jóns Vídalín.

Nýjustu fréttir

Bæjarstjórn gagnrýnir boðaðan niðurskurð til Herjólfs
ÍBV vann öruggan sigur á Stjörnunni – Sandra fór á kostum
Heimir Hallgrímsson heldur varnarnámskeið í Eyjum í desember
Vestmannaeyjabær leggur sex milljónir í hlutafjáraukningu í Eyjagöngum
Skálað og skrafað í Miðstöðinni – myndir
Eyjakonur vilja halda í við topplið Hauka
Glæsileg söngveisla þriggja kóra í Eyjum
Þoka hér en ekki þar
Eyjafréttir
Friðhelgisyfirlýsing

Þessi vefsíða notar fótspor til að við getum veitt þér bestu notendaupplifun. Upplýsingar um fótspor eru geymdar í vafranum þínum og framkvæma aðgerðir eins og að þekkja þig þegar þú kemur aftur á vefsíðu okkar og hjálpa teymi okkar að skilja hvaða hluta vefsíðunnar þér finnst áhugaverðast og gagnlegast.