Reykskynjarinn bjargaði
Slökkvilið Vestmannaeyja var kallað að íbúðarhúsi við Bröttugötu í Vestmannaeyjum rétt fyrir klukkan 3 í nótt. Tilkynnt var um eld í húsinu en mikinn reyk lagði frá því. Slökkvistarf stendur enn yfir en samkvæmt upplýsingum frá slökkviliðinu, bendir allt til þess að eldurinn hafi átt upptök sín í frystiskáp inn af eldhúsi hússins. Einn maður var í húsinu en hann vaknaði við reykskynjara og var húsið orðið fullt af reyk. Hann komst út og gerði viðvart hjá nágranna en hann taldi sig ekki hafa orðið fyrir reykeitrun. Eiginkona mannsins og tvö börn þeirra voru ekki í húsinu þegar eldurinn kom upp en þau eru stödd í Reykjavík.

Nýjustu fréttir

Ísland vann stórsigur á Úkraínu í undankeppni EM
Blásið til hausttónleika
Leggja til aukaferju með Herjólfi á sumrin
Hörgeyrargarður og ábyrgð okkar gagnvart framtíðinni
Elliði Snær og félagar mæta Úkraínu í kvöld
Bæjarstjórn fundar í dag – bein útsending
Kvöldopnun með afsláttum og uppákomum
Erfitt vor en sterkt sumar hjá Herjólfi
Eyjafréttir
Friðhelgisyfirlýsing

Þessi vefsíða notar fótspor til að við getum veitt þér bestu notendaupplifun. Upplýsingar um fótspor eru geymdar í vafranum þínum og framkvæma aðgerðir eins og að þekkja þig þegar þú kemur aftur á vefsíðu okkar og hjálpa teymi okkar að skilja hvaða hluta vefsíðunnar þér finnst áhugaverðast og gagnlegast.