Ríkisendurksoðun - Uppsafnaður halli er mestur hjá HSU
Ríkisendurskoðun hvetur velferðarráðuneytið til að bregðast sem fyrst við uppsöfnuðum rekstrarhalla fimm heilbrigðisstofnana á landsbyggðinni sem nam tæplega einum milljarði króna á síðasta ári. Heilbrigðisyfirvöld nota sérstakt reiknilíkan til að meta fjárþörf heilbrigðisstofnana á landsbyggðinni. Tillögur til Alþingis um fjárveitingar til stofnananna hafa m.a. byggst á útreikningum þessa líkans.
�?etta kemur fram á vef Ríkisendurskoðunar þar sem segir að árið 2013 hafi stofnunin hvatt velferðarráðuneytið til að tryggja aðgengi forstöðumanna að líkaninu og auka gagnsæi og læsileika þess svo ekki færi milli mála hvernig það væri notað til útreikninga. Uppfæra líkanið árlega með tilliti til breyttra forsendna, s.s. launa- og verðlagsbreytinga og nýrra upplýsinga um starfsemi og rekstur heilbrigðisstofnana. Kanna hvort forsendur líkansins væru raunhæfar sem viðmið við að leggja línur um fjárveitingar.
Í nýrri eftirfylgniskýrslu Ríkisendurskoðunar kemur fram að nú þremur árum síðar telur stofnunin ekki þörf á að ítreka þessar þrjár ábendingar. Vel­ferðar­­ráðuneytið vinni að þróun nýrra fjármögnunarlíkana fyrir heilbrigðis­þjón­ustu sem taki mið af því að rekstr­arfjármagn stofnana endurspegli þann sjúklinga­hóp sem þær þjóna. Um leið munu rekstraraðilar stofnana fá rafrænt upplýsingar um út­reikn­inga sem hafa áhrif á fjárheim­ildir þeirra.
Hallinn mestur hjá Heilbrigðisstofnun Suðurlands
Engu að síður hvetur Ríkisendurskoðun ­ráðuneytið til að leita leiða til að bregðast sem fyrst við miklum uppsöfnuðum halla fimm heil­brigðisstofnana á landsbyggðinni. Árið 2015 nam hann samtals 956 milljónum króna og hafði meira en tvöfaldast frá árinu 2012. Um er að ræða Heilbrigðisstofnun Norðurlands, Heilbrigðisstofnun Suðurlands, Heilbrigðisstofnun Austurlands, Heilbrigðisstofnun Suðurnesja og Heilbrigðisstofnun Vestfjarða. Af þessum stofnunum var uppsafnaður halli langmestur hjá Heilbrigðisstofnun Suðurlands (391 milljón króna) og næstmestur hjá Heilbrigðisstofnun Austurlands (270 milljónir króna).

Nýjustu fréttir

Dýpkunin í Landeyjahöfn sögð ganga vonum framar
ÍBV fallið úr Bestu deild karla eftir tap gegn Þór á Akureyri
ÍBV fyrst til að leggja ÍR að velli á tímabilinu
Eyjar liðins tíma lifna við – 1. þáttur
Tveir fyrir einn… og ævilöng áhrif
Íbúar hvattir til að móta framtíð atvinnulífs í Eyjum
„Mikilvægt að við fáum að láta rödd okkar heyrast“
Eyjamenn geta lyft sér af botninum með sigri á Þór
viðburðir
Atvinna
13. október 2026
17:15
Íbúaþing um atvinnustefnu í Eldheimum
Eyjafréttir
Friðhelgisyfirlýsing

Þessi vefsíða notar fótspor til að við getum veitt þér bestu notendaupplifun. Upplýsingar um fótspor eru geymdar í vafranum þínum og framkvæma aðgerðir eins og að þekkja þig þegar þú kemur aftur á vefsíðu okkar og hjálpa teymi okkar að skilja hvaða hluta vefsíðunnar þér finnst áhugaverðast og gagnlegast.