Ríkisstjórn samþykkir að auka fjármuni til innleiðingar á nýjum lyfjum
Ríkisstjórnin samþykkti í morgun tillögu heilbrigðisráðherra um að fela fjármála- og efnahagsráðherra, í samráði við heilbrigðisráðherra, að tryggja aukið fjármagn svo unnt verði að taka í notkun fleiri ný lyf á þessu ári 2016.
Í fjárlögum ársins 2016 er gert ráð fyrir að fjárheimildir til s-merktra lyfja verði 6.266 m.kr. Heilbrigðisráðherra ákvað í janúar að veita hundrað milljóna króna viðbótarframlag af safnlið ráðuneytisins til að greiða fyrir innleiðingu fleiri nýrra lyfja, að höfðu samráði við lyfjagreiðslunefnd.
Lyfjagreiðslunefnd hefur nú fengið frá Landspítala yfirlit yfir þau forgangslyf sem spítalinn óskar eftir að fá að innleiða á þessu ári. Á þeim lista eru m.a. mörg ný krabbameinslyf. Lyfjagreiðslunefnd hefur vakið athygli á að aðrar Norðurlandaþjóðir hafi samþykkt greiðsluþátttöku í flestum þeirra lyfja sem eru á forgangslista Landspítala en fjárheimildir eins og þær voru ákveðnar í fjárlagafrumvarpinu nægja ekki til að standa straum af þeim kostnaði sem leiðir af innleiðingu þeirra.
Einn helsti óvissuþáttur við gerð áætlana um innleiðingu nýrra lyfja felst í því að meta hve margir sjúklingar muni þurfa á lyfjunum að halda. �?egar um er að ræða mjög dýr lyf getur það kollvarpað fyrirliggjandi áætlun ef sjúklingar sem á lyfjunum þurfa að halda reynast fleiri en áætlað var.
Heilbrigðisráðherra fundaði með lyfjagreiðslunefnd í byrjun þessa árs þar sem fram kom að nefndin teldi ekki unnt að innleiða ný S-merkt lyf á þessu ári miðað við framlög fjárlaga. Í framhaldi af því veitti ráðherra 100 milljóna króna aukið framlag til að greiða fyrir innleiðingu nýrra lyfja en ákvað jafnframt að leggja til við ríkisstjórnnina að leggja aukið fé til málaflokksins, líkt og samþykkt var á fundi hennar í morgun. Markmðið er að gera kleift að innleiða öll þau lyf sem sett hafa verið á forgangslista af hálfu Landpítalans.
Heilbrigðisráðherra fagnar þessari niðurstöðu
�??.�?að er ljóst að með þessari ákvörðun ríkisstjórnarinnar verður unnt að innleiða fleiri ný lyf en áætlanir gerðu ráð fyrir. �?að er afar mikilvægt því þar með getum við þjónað sjúklingum betur og á sambærilegan hátt og gert er hjá nágrannaþjóðum okkar�?? segir Kristján �?ór Júlíusson heilbrigðisráðherra.
Fjármála- og efnahagsráðherra og heilbrigðisráðherra áætla að kynna tillögur um viðbótarfjármagn til málaflokksins síðar í þessum mánuði.

Nýjustu fréttir

Dýpkunin í Landeyjahöfn sögð ganga vonum framar
ÍBV fallið úr Bestu deild karla eftir tap gegn Þór á Akureyri
ÍBV fyrst til að leggja ÍR að velli á tímabilinu
Eyjar liðins tíma lifna við – 1. þáttur
Tveir fyrir einn… og ævilöng áhrif
Íbúar hvattir til að móta framtíð atvinnulífs í Eyjum
„Mikilvægt að við fáum að láta rödd okkar heyrast“
Eyjamenn geta lyft sér af botninum með sigri á Þór
viðburðir
Atvinna
13. október 2026
17:15
Íbúaþing um atvinnustefnu í Eldheimum
Eyjafréttir
Friðhelgisyfirlýsing

Þessi vefsíða notar fótspor til að við getum veitt þér bestu notendaupplifun. Upplýsingar um fótspor eru geymdar í vafranum þínum og framkvæma aðgerðir eins og að þekkja þig þegar þú kemur aftur á vefsíðu okkar og hjálpa teymi okkar að skilja hvaða hluta vefsíðunnar þér finnst áhugaverðast og gagnlegast.