Róbert Guðfinnsson, athafnamaður heldur fyrirlestur í Sagnheimum
Hádegisfyrirlestri Róberts Guðfinnssonar athafnamanns sem frestað var í september sl. verður nú haldinn í Sagnheimum, byggðasafni á morgun, 7. apríl nk. frá 12-13. Í fyrirlestrinum mun Róbert fjalla um uppbygginguna á Siglufirði og aðkomu sína að henni. Frá hruni norsk-íslenska síldarstofnsins árið 1967 hafði íbúum á Siglufirði fækkað. Tæknivæðing í sjávarútvegi og einhæft atvinnulíf leiddi af sér fækkun starfa og fá tækifæri voru fyrir ungt menntað fólk. Með nýsköpun í líftækni og fjárfestingu í ferðaiðnaði myndaðist nýr grunnur fyrir samfélagið. Breidd í atvinnulífinu með nýjum störfum gefur nýrri kynslóð tækifæri til að snúa vörn í sókn.
Fyrirlesturinn er samstarfsverkefni Sagnheima og Rótarýklúbbs Vestmannaeyja en klúbburinn fagnaði 60 ára afmæli sínu á síðasta ári.

Nýjustu fréttir

Bæjarstjórn gagnrýnir boðaðan niðurskurð til Herjólfs
ÍBV vann öruggan sigur á Stjörnunni – Sandra fór á kostum
Heimir Hallgrímsson heldur varnarnámskeið í Eyjum í desember
Vestmannaeyjabær leggur sex milljónir í hlutafjáraukningu í Eyjagöngum
Skálað og skrafað í Miðstöðinni – myndir
Eyjakonur vilja halda í við topplið Hauka
Glæsileg söngveisla þriggja kóra í Eyjum
Þoka hér en ekki þar
Eyjafréttir
Friðhelgisyfirlýsing

Þessi vefsíða notar fótspor til að við getum veitt þér bestu notendaupplifun. Upplýsingar um fótspor eru geymdar í vafranum þínum og framkvæma aðgerðir eins og að þekkja þig þegar þú kemur aftur á vefsíðu okkar og hjálpa teymi okkar að skilja hvaða hluta vefsíðunnar þér finnst áhugaverðast og gagnlegast.