Sæmdur æðsta heiðursmerki ÍBV
Gísli Valtýsson, fyrrum framkvæmdastjóri Eyjasýnar varð 70 ára þann 27. febrúar sl. Hélt hann upp á afmælið í fjölmennu samkvæmi með vinum og vandamönnum í Golfskálanum um kvöldið. Gísla bárust margar kveðjur og Sigurgeir Jónsson lét sig ekki muna um að yrkja drápu Gísla til heiðurs sem hann gaf afmælisbarninu að hætti skálda til forna. Við þetta tækifæri var Gísli sæmdur æðsta heiðursmerki ÍBV, heiðurskrossi úr gulli.
�?að var félagi hans til áratuga, �?ór Í. Vilhjálmsson, formaður héraðssambandsins sem afhenti Gísla heiðurmerkið. Sagði hann það sér mikið ánægjuefni. �??�?g var þess aðnjótandi að kynnast Gísla þegar við vorum kornungir í starfi og leik hjá íþróttafélaginum �?ór,�?? sagði �?ór.
�??Gísli varð fljótt áberandi í starfi og leik hjá �?ór og valdist ungur til ábyrgðarstarfa, sat í stjórn félagsins í 17 ár lengst af sem gjaldkeri, þá var hann einn af ötulustu starfsmönnum þjóðhátíðar og sat í þjóðhátíðarnefndum. Lokaverkefni okkar fyrir íþróttafélagið �?ór var að standa að útgáfu bókar um starf �?órs og að sjálfsögðu sá hann um fjármálin þar.
Eftir að starfsemi �?órs lauk kom hann að starfi ÍBV- íþróttafélags, fyrst sem endurskoðandi félagsins og hefur um nokkra ára skeið farið fyrir hópi þeim, sem heldur utan um rukkunarmál þjóðhátíðanna hjá félaginu. Gísli settist í stjórn Íþróttabandalags Vestmannaeyja sem gjaldkeri og er búinn að sitja þar í stjórninni í 22 ár, en er nú er að ljúka störfum fyrir íþróttahreyfinguna” sagði �?ór að lokum.
Gísli Valtýsson sjo�?tugur 27. febrúar 2016
Ungbarn fæddist eina tíð,
árið eftir seinna stríð.
Elstur barna á þeim bæ,
Erlu son og Valla Snæ.

Eins og gull af eiri bar,
íþróttirnar stundaðar.
Hans var litur himinblár,
�?órspúki í húð og hár.

�?vistarfið einkum var
í að bera oss Fréttirnar.
Á því hafðir einstakt lag,
útgáfan með myndarbrag.


Sómakenndin sífellt sterk,
af sóma inntir o�?ll þín verk.
Með sóma berð þín sjo�?tíu ár,
sómakarl í húð og hár.
Með vinarkveðju Sigurgeir Jónsson

Nýjustu fréttir

ÍBV mætir Tindastól í 16-liða úrslitum Mjólkurbikarsins
Er Herjólfsferð örugg ferð?
Eyjarnar fiskað afar vel að undanförnu
Samgöngur til Vestmannaeyja algerlega óásættanlegar
Skyldumæting í höllina í dag!
Undirskriftalisti vegna ástandsins í Landeyjahöfn
ÍBV tapaði gegn Fram á Lambhagavellinum
Ólíklegt að höfnin opni um helgina

Góð ráð fyrir siglingu

Sjóveiki

Hvað er sjóveiki?

Sjóveiki er misræmi milli skynfæra líkamans sem senda boð til heilans um hreyfingu – kyrrstöðu.

Þegar einstaklingur er úti á sjó þá nema skynjarar í vökvafylltum gangi í innra eyra hreyfingu og senda boð til heilans að einstaklingur sé á hreyfingu. Augun senda hins vegar boð til heilans um að viðkomandi sé kyrr. Heilinn á erfitt með að vinna úr þessum misvísandi og ósamræmdu upplýsingum og sendir skilaboð til magans um að tæma sig – þ.e. veldur uppköstum.

Einkenni sjóveiki eru þreyta, ógleði, svimi, svitakóf og uppköst.

Góð ráð til að hindra sjóveiki:

  • Góð hvíld daginn fyrir brottför. Að fara seint að sofa og snemma um borð í bát fer ekki vel saman ef fólk er hætt við sjóveiki.
  • Forðist áfenga drykki daginn fyrir brottför
  • Forðist djúpsteiktan, brasaðan eða saltan mat daginn fyrir siglingu.
  • Borðið góðan morgunverð. Borðið gjarnan hvítt brauð, hafragraut og ávexti þó ekki sítrus ávexti.
  • Forðist mikið koffein. Mikið kaffi er ekki það sem maganum líkar fyrir sjóferð.
  • Hafðu mat með þér á sjó. Gott er að hafa samlokur með kjúklingi eða kalkún. Kjötið er fitusnautt og brauðið er róandi í maga. Hafðu endilega eitthvað til að grípa í sem er létt í maga. Bananar eru mjög góðir til að narta í ef þú finnur fyrir ógleði en einnig er gott að hafa létt kex eða annað sem er ekki salt eða fitumikið.
  • Drekkið vel af vatni en einnig er gott er að drekka kóla drykki eða engiferöl í sjóferðinni

Lyf við sjóveiki þ.e. lyf sem slá á einkennin og fást án lyfseðils í apóteki.

  • Koffínátín – fæst án lyfseðils
  • Postafen – fæst án lyfseðils
  • Scopolamin plástur – lyfseðilsskyltEinnig má fá armbönd gegn ferðaveiki sem sumir telja að hjálpi.

Önnur ráð:

  • Engifer er jurt sem nýlega hefur fengið aukna athygli vegna þess að því er haldið fram að hún geti slegið á ógleði sem fylgir sjóveiki. Til forna tuggðu kínverskir sjómenn engiferrót til að draga úr sjóveiki. Flest lyf sem virka á ógleði verka á heilann en engifer virkar aðeins á magann. Ráðlagt er að taka 1000 mg. hylki hálftíma fyrir brottför. Einnig má taka eitt eða tvö 500 mg. hylki sem eru til viðbótar á ferðalaginu. Ekki er ráðlagt að drekka coke með engifertöflum.
  • Piparminta og te eru einnig gömul húsráð við ferðaveiki.
  • Sumum finnst betra að taka sýrujafnandi töflur, Alminox eða slíkt áður en þú heldur á sjó og þá er gott að hafa box með út á sjó.

Hvar í skipinu er best að vera o.fl.

  • Minna finnst fyrir hreyfingu og veltingi ef maður er staddur næst miðju bátsins.
  • Mörgum finnst gott að vera í kulda, t.d.að vera úti á dekki og láta vindinn leika um sig.
  • Matarlykt fer illa í þá sem hætt er við sjóveiki og einnig pústið frá bátnum.

Þungun:

Þungaðar konur sem þjást af sjóveiki mega nota koffinátín í litlum skömmtum en best er að ráðfæra sig við lækni eða lyfjafræðing.
Þunguðum konum er ekki ráðlagt að nota engifer þar sem það er ekki staðfest hvort það geti haft skaðleg áhrif á fóstur.

Eyjafréttir
Friðhelgisyfirlýsing

Þessi vefsíða notar fótspor til að við getum veitt þér bestu notendaupplifun. Upplýsingar um fótspor eru geymdar í vafranum þínum og framkvæma aðgerðir eins og að þekkja þig þegar þú kemur aftur á vefsíðu okkar og hjálpa teymi okkar að skilja hvaða hluta vefsíðunnar þér finnst áhugaverðast og gagnlegast.