Samgönguljóð
Samgöngumálin brenna á öllum Eyjamönnum þessa dagana og því fannst okkur tilvalið að fá að deila þessu skemmtilega ljóði sem Hildur Sólveig Sigurðardóttir samdi í fyrradag.
�?orlákshafnarþunglyndið
þreytir okkar huga.
�?þolandi eilíf bið
okkur má ei buga.
Landeyjarnar lokkandi
laða fram það besta
opnar væru óskandi
okkar daga flesta.
Lengdir garðar, einn í L
lausnina ei þekki.
Sandinn þarf í einum hvell
að setja í fasta hlekki
Ferjuna nú fljótlega
fara þarf að smíða
svo að yfir skjótlega
siglingin mun líða
Tugi tvo af bílum fleiri
tekst henni að bera.
�?ryggi og afköst meiri
ágæti hennar gera
Svefnrými af skammti skornum
skelfir Eyjaskeggja.
Fleiri rým�?? í Jólfi fornum
Fyrir sig að leggja
Í Landeyjar mér hugnast þó
hundrað fleiri dagar,
þó einn og einn í haugasjó
aumir verði magar
Búum Eyjum framtíð bjarta
Bíðum ekki kyrr
Heimaeyjar sterka hjarta
slær sem aldrei fyrr
(HSS)

Nýjustu fréttir

Bæjarstjórn gagnrýnir boðaðan niðurskurð til Herjólfs
ÍBV vann öruggan sigur á Stjörnunni – Sandra fór á kostum
Heimir Hallgrímsson heldur varnarnámskeið í Eyjum í desember
Vestmannaeyjabær leggur sex milljónir í hlutafjáraukningu í Eyjagöngum
Skálað og skrafað í Miðstöðinni – myndir
Eyjakonur vilja halda í við topplið Hauka
Glæsileg söngveisla þriggja kóra í Eyjum
Þoka hér en ekki þar
Eyjafréttir
Friðhelgisyfirlýsing

Þessi vefsíða notar fótspor til að við getum veitt þér bestu notendaupplifun. Upplýsingar um fótspor eru geymdar í vafranum þínum og framkvæma aðgerðir eins og að þekkja þig þegar þú kemur aftur á vefsíðu okkar og hjálpa teymi okkar að skilja hvaða hluta vefsíðunnar þér finnst áhugaverðast og gagnlegast.