Sigling með Herjólfi og skemmtiferðaskipinu Royal Princess
Royal Princess
Royal Princess viewed from the 17th Street Bridge
Nú styttist vonandi í opnun Landeyjarhafnar og um leið kemur aukinn ferðahugur í okkur Vestmannaeyinga. Vandræðin í kringum Landeyjahöfn er sér kapítuli út af fyrir sig, en það hefur ekki nægilega verið gagnrýnt undanfarið hversu há fargjöldin með skipinu eru orðin. �?að að fara upp á land er orðið að munaði sem ekki allir geta leyft sér nema annað slagið. Fargjöldin virðist vera hægt að hækka eftir hentugleika rekstraraðilans sem fer eftir eigin tilbúinni ,,ferjuvísitölu” sem svo stenst enga skoðun þar sem olíuverð hefur snarlækkað á undanförnum mánuðum.
En með væntanlegri opnun Landeyjahafnar lækkar þetta umtalsvert eða um heilar 2000 kr á hvern fullorðinn farþega.
Setjum upp örlítið öfgakenndann samanburð á siglingu með Herjólfi og skemmtiferðaskipinu Royal Princess.
Við notum eingöngu verðskrá í skipið miðað við siglingar í �?orlákshöfn og án þess að Eimskipum séu lánaðar vaxtalaust 34.500 kr til að kaupa svokallað afsláttarkort. Afhverju ekki að miða við Landeyjarhafnarverðið? Jú við siglum meira en helminginn af árinu til �?orlákshafnar.
Verð fyrir fullorðinn eru 3.420 kr, sama er greitt undir bílinn og sama verð er á tveggja manna klefa.
Setjum dæmið upp þannig að við reiknum ekki verðið út frá hverri ferð heldur hverri klukkustund á siglingu með skipinu.
Hjónin ætla með skipinu fram og til baka og taka bílinn með sér en tíma ekki að taka börnin með.
�?au kaupa þriggja tíma afnot af klefa, og samkvæmt verðskrá kostar ferðin, fram og til baka, 27.360 kr. Samtals eyða þau um 6 klukkustundum um borð í ferjunni og því reiknast það út að klukkustundin kostar um 4.560 kr. og þá sólarhringurinn 109.440 kr.
Verðið fyrir viku siglingu með Herjólfi á þessum verðmiða yrði þá 766.080 kr.
Reiknum nú hvað það kostar þessi sömu hjón að eyða viku um borð í skemmtiferðaskipinu Royal Princess á Miðjarðarhafinu.
�?au panta ferðina sjálf í gegnum netið en skipið siglir frá Rómarborg til Barcelona. �?au verða að vera fjórar nætur í Róm áður en sigling sjálf hefst vegna flugáætlana og áætlunar skipsins. �?au panta flug og hótel sjálf á netinu, bæði fyrir siglinguna og eftir hana úti í Barcelona. En þar dvelja þau í tvær nætur. Fyrir siglinguna sjálfa, í klefa með svölum, borga þau 360.000 kr svo að verðmunurinn á siglunni einni og sér er orðinn 406.080 kr. En það eru engar svalir við klefann í Herjólfi.
Samkvæmt vefsíðum WoWair og hótelbóknuarvef Fararheilla kostar flugið út, hótelið, bæði í Róm og Barcelona samtals um 180.000 kr. Og kostar því ferðin í heild sinni 540.000 kr. En þessi ferð er reyndar lengri þar sem það ,,þarf” að stoppa aðeins í Róm og Barcelona og tekur ferðin því 13 daga. En þar sem við erum aðallega að bera saman verðið á miðanum og þjónustuna um borð í skipunum þá munar þar talsverðu.
�?kosturinn við Miðjarðarhafssiglinguna er hins vegar sá að bíllinn er ekki með í för, en það kemur sér kannski vel þar sem fæstir eru ökuhæfir í slíkum siglingum.
Fyrir okkur sem hér búum er verðmiðinn á þessum munaði sem við viljum leyfa okkur orðinn alltof hár. �?að þýðir ekkert alltaf að miða við verð í Landeyjahöfn þar sem hún er ónothæf hálft árið. Að það skuli kosta fimm manna fjölskyldu, án afsláttar, 17.160 kr að fara aðra leiðina með bílinn og leigja einn klefa er komið langt út fyrir öll eðlileg mörk. Fólk sem hingað kemur sem gestir er ekki að kaupa sér afsláttarkort fyrir eina ferð á ári. Auk þessa þá dugar afsláttarkortið fimm manna fjölskyldu ekki til að fara tvær ferðir fram og til baka.
�?að á ekki að vera munaður að fara upp á land með fjölskylduna. �?að á heldur ekki að stuðla að einangrun með alltof háum verðmiða um þennan þjóðveg okkar allra. Krefjumst þess að verðlagning á notkun þessa kafla á þjóðvegakerfinu verði endurskoðuð með lækkun á verði í huga sem leiðir þá af sér aukin lífsgæði fyrir okkur öll.
�?orbjörn Víglundsson.

Nýjustu fréttir

Ólíklegt að höfnin opni um helgina
Stærstu viðskiptafréttir í Eyjum á næsta leiti?
Svava Tara hjá Sölku fer yfir sumartískuna 2026
Eyjan okkar
Brjóstaskimun í Eyjum
Tvö fyrirtæki frá FÍV komin í úrslit fyrirtækjasmiðju
Ómálefnaleg veiðiráðgjöf á hvölum
Við þurfum að hætta þessum bútasaumi
Eyjafréttir
Friðhelgisyfirlýsing

Þessi vefsíða notar fótspor til að við getum veitt þér bestu notendaupplifun. Upplýsingar um fótspor eru geymdar í vafranum þínum og framkvæma aðgerðir eins og að þekkja þig þegar þú kemur aftur á vefsíðu okkar og hjálpa teymi okkar að skilja hvaða hluta vefsíðunnar þér finnst áhugaverðast og gagnlegast.