Sigurður Ingi yrði fyrsti sunnlenski forsætisráðherrann
Í ölduróti í íslenskri pólitík síðustu daga og klukkustunda er ekki útilokað að fyrsti þingmaður Suðurkjördæmis, Sigurður Ingi Jóhannsson, sjávarútvegs- og landbúnaðarráðherra og atvinnuvega- og nýsköpunarráherra og þingmaður Framsóknarflokks verði forsætisráðherra.
Bjarni Benediktsson, fjármálaráðherra og formaður Sjálfstæðisflokksins upplýsti eftir fund með �?lafi Ragnari Grímssyni, forseta síðdegis að sjálfstæðismenn treystu sér ekki í áframhaldandi samstarf með Framsókn án breytinga. �?að virðist hafa nægt að Sigmundur Davíð Gunnlaugsson hætti sem forsætisráðherra. Boðaði Bjarni viðræður við Sigurð Inga og tók hann fram að sjálfur gerði hann ekki kröfu um forsætisráðherrastólinn.
�?að er ekki að sjá neitt í veginum að samkomulag náist og Sigurður Ingi verði forsætisráðherra. Spurning er hvort boðað verður til kosninga áður en kjörtímabilinu lýkur í apríl á næsta ári.
Gangi þetta eftir er Sigurður Ingi fyrsti Sunnlendingurinn í stól forsætisráðherra Íslands.

Nýjustu fréttir

Bæjarstjórn gagnrýnir boðaðan niðurskurð til Herjólfs
ÍBV vann öruggan sigur á Stjörnunni – Sandra fór á kostum
Heimir Hallgrímsson heldur varnarnámskeið í Eyjum í desember
Vestmannaeyjabær leggur sex milljónir í hlutafjáraukningu í Eyjagöngum
Skálað og skrafað í Miðstöðinni – myndir
Eyjakonur vilja halda í við topplið Hauka
Glæsileg söngveisla þriggja kóra í Eyjum
Þoka hér en ekki þar
Eyjafréttir
Friðhelgisyfirlýsing

Þessi vefsíða notar fótspor til að við getum veitt þér bestu notendaupplifun. Upplýsingar um fótspor eru geymdar í vafranum þínum og framkvæma aðgerðir eins og að þekkja þig þegar þú kemur aftur á vefsíðu okkar og hjálpa teymi okkar að skilja hvaða hluta vefsíðunnar þér finnst áhugaverðast og gagnlegast.